Varnir Evrópu Arnór Sigurjónsson skrifar 16. febrúar 2026 13:02 Öryggisráðstefnunni í Munich er lokið. Ræða Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna gerði lítið til að friða efasemdir Evrópubúa um stefnu Bandaríkjanna í heimsmálum hvort heldur það lítur að sameiginlegum vörnum, mannréttindum eða loftslagsmálum þó svo að hann sýndi meiri kurteisi en Vance, varaforseti gerði í fyrra á sama vettvangi. Og stjórnmálamenn Evrópu tóku eftir því að lokinni þátttöku í öryggisráðstefnunni heimsótti Rubio aðeins fulltrúa mestu afturhaldsafla innan ESB ríkjanna sem hafa sýnt Rússlandi mestu þjónkun, þá Orban, forsætisráðherra Ungverjalands og Figo forsætisráðherra Slóvakíu. Niðurstaðan er eftir sem áður sú að Evrópa verði að geta staðið á eigin fótum í að verja sameiginleg gildi og áherslur í öryggis- og varnarmálum, styðja Úkraínu gegn árásarstríði Rússlands þó svo að Bandaríkin skili auðu, tryggja sjálfstæði og fullveldi aðildarríkjanna og efnahagslegan framgang álfunnar þrátt fyrir tollastríð Trumps. Á sama tíma gera allir sér grein fyrir því að það verkefni að venja Evrópu af því að vera í skjóli Bandaríkjanna er risastórt. Á hernaðarsviðinu eru þetta helstu áskoranirnar á næstu 5-8 árum: Stærsta og erfiðasta áskorunin er að koma á fót gervitunglabelti í himingeimnum sem getur komið í stað bandaríska kerfisins hvað varðar upplýsingaöflun, eftirlit með landsvæðum og staðsetningu skotmarka. Þar á eftir kemur nauðsyn þess að þróa og framleiða meðaldræg og langdræg kjarnorkuvopn til viðbótar þeim strategísku eldflaugum sem Frakkar og Bretar ráða nú þegar yfir. Þetta er nauðsynlegt til að leysa kjarnorkuregnhlíf Bandaríkjanna af hólmi, en Rússar hafa staðsett vopn af þessari tegund bæði í Belarús og Kalingrad. Þjóðverjar og Svíar munu þurfa að taka þátt í þessu verkefni. Fjölga þarf í herjum Evrópu og koma á fót sameiginlegri herstjórn. Hugsanlegt er að ef Bandaríkin draga úr eða minnka þátttöku sína í NATO að þá yfirtaki ESB þessa kjarnastarfsemi undir stjórn evrópsks hershöfðingja. Efla þarf flutningagetu Evrópu með langdrægum flutningavélum. Samræma þarf vopnaframleiðslu þannig að einstök ríki keppi ekki lengur hvort við annað og stuðla þarf að fjöldaframleiðslu. Evrópa getur ekki lengur reitt sig alfarið á bandarísk vopn þar sem uppfærslur og varahlutir eru á hendi þeirra síðarnefndu. Sem dæmi má nefna hinar fullkomnu og háþróuðu F-35 orustuþotur sem margar Evrópuþjóðir hafa keypt. Gangi þetta eftir verður Evrópa í stakk búin til að standa sem sjálfstætt afl á meginlandinu með slagkraft sem hvorki Rússland eða Bandaríkin geta horft framhjá. Evrópa yrði þá verðugur bandamaður! Höfundur er varnarmálasérfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Arnór Sigurjónsson Öryggis- og varnarmál Mest lesið Til fréttastofu RÚV um kynferðisofbeldi og pyntingar Ísraels Ingólfur Gíslason Skoðun Þarf Icelandair að skipta um nafn? Jón Þór Þorvaldsson Skoðun Fáheyrðar yfirlýsingar innviðaráðherra Lilja S. Jónsdóttir,Gauti Kristmannsson Skoðun Hildur. Borgarstjórinn okkar Hildur Sverrisdóttir Skoðun Ábyrgð sveitarfélaga varpað á aðstandendur Jóna Elísabet Ottesen Skoðun Það á að vera einfalt að búa í Reykjavík Þorvaldur Davíð Kristjánsson Skoðun Brostnar vonir í Kópavogi Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Hvar slær hjarta kjósenda? Ragnar Sigurður Kristjánsson Skoðun Takk Hveragerði Njörður Sigurðsson Skoðun Hvar á láglaunafólk að búa? Ábyrgð sveitarfélaga Róbert Farestveit,Jana Eir Víglundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Lífsgæði fyrir alla - Áhersluatriði Öldungaráðs Viðreisnar Sverrir Kaaber skrifar Skoðun Kársnes á krossgötum Máni Þór Magnason skrifar Skoðun Samgöngumál í ólestri í Hafnarfirði - aðgerða þörf strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Falið fagstarf frístundaheimila Hafdís Oddgeirsdóttir,Viktor Orri Þorsteinsson skrifar Skoðun Hvað verður um Ylju neyslurými? Bjartur Hrafn Jóhannsson,Hákon Skúlason skrifar Skoðun Áfram og upp Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Fráleitar tillögur um að einkavæða orkufyrirtækin okkar Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Kennarar þurfa ekki skammir heldur stuðning okkar Líf Magneudóttir skrifar Skoðun Óvenju mikið í húfi Skúli Helgason skrifar Skoðun Ný Heiðmörk fyrir Reykvíkinga Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerum miðbæ Garðabæjar iðandi af lífi og menningu Vilmar Pétursson skrifar Skoðun Betri Hafnarfjörður Árni Stefán Guðjónsson skrifar Skoðun Ábyrgð sveitarfélaga varpað á aðstandendur Jóna Elísabet Ottesen skrifar Skoðun Takk Hveragerði Njörður Sigurðsson skrifar Skoðun Aukum valfrelsi foreldra í Mosfellsbæ Sóley Sævarsdóttir Meyer skrifar Skoðun Fáheyrðar yfirlýsingar innviðaráðherra Lilja S. Jónsdóttir,Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Heilsársbúseta er hjarta samfélagins Þorgerður Lilja Björnsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík verður að styðja við fátæk börn í borginni Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir skrifar Skoðun Sjálfskapaður vandi Evrópu Einar G. Harðarson skrifar Skoðun Það á að vera einfalt að búa í Reykjavík Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar Skoðun Fyrirmyndir Sigrún Steinarsdóttir skrifar Skoðun Kosningar og leikskólamál Sigríður Clausen skrifar Skoðun Hvar á láglaunafólk að búa? Ábyrgð sveitarfélaga Róbert Farestveit,Jana Eir Víglundsdóttir skrifar Skoðun Þetta gerðum við á 15 mánuðum Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar Skoðun Fullveldið er falið í gagnaeign Hjörtur Smárason skrifar Skoðun Borgar menning sig? Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Brostnar vonir í Kópavogi Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Participation and Local Elections: A reflection from someone who cannot vote yet Gemma Fornell Parra skrifar Skoðun Hildur. Borgarstjórinn okkar Hildur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Hvar slær hjarta kjósenda? Ragnar Sigurður Kristjánsson skrifar Sjá meira
Hvar á láglaunafólk að búa? Ábyrgð sveitarfélaga Róbert Farestveit,Jana Eir Víglundsdóttir Skoðun
Skoðun Hvar á láglaunafólk að búa? Ábyrgð sveitarfélaga Róbert Farestveit,Jana Eir Víglundsdóttir skrifar
Skoðun Participation and Local Elections: A reflection from someone who cannot vote yet Gemma Fornell Parra skrifar
Hvar á láglaunafólk að búa? Ábyrgð sveitarfélaga Róbert Farestveit,Jana Eir Víglundsdóttir Skoðun