Sakfelldar fyrir að brjótast um borð í hvalveiðiskip Árni Sæberg skrifar 16. febrúar 2026 13:51 Katrín Oddsdóttir, lögmaður kvennanna, og Anahita. Vísir/Vilhelm Anahita Babaei og Elissa May Philipps hafa verið sakfelldar fyrir að brjótast um borð í hvalveiðiskip í mótmælaskyni árið 2023 og dæmdar til 200 þúsund króna sektargreiðslu.
Þetta var niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kvað upp dóm í máli þeirra Anahitu og Elissu nú síðdegis. Dómur í málinu hefur ekki verið birtur og því liggja forsendur hans ekki fyrir að svo stöddu. Að sögn Katrínar Oddsdóttur, verjanda kvennanna, voru þær sakfelldar í báðum ákæruliðum. Hún muni nú leggjast yfir dómum með umbjóðendum sínum og taka ákvörðun um hvort dóminum verði áfrýjað. Auk sektargreiðslunnar hafi þær verið dæmdar til greiðslu alls málskostnaðar. Fallið frá hluta ákæru Anahita og Elissa voru ákærðar fyrir annars vegar húsbrot og hins vegar að fylgja ekki skipunum lögreglu þegar þær klifruðu upp í tunnur á Hval 8 og 9, hvalveiðiskipum í eigu Hvals hf., til að mótmæla hvalveiðum. Þar vörðu þær 33 klukkustundum. Upphaflega voru þær einnig ákærðar fyrir brot á lögum um siglingavernd en fallið var frá þeim ákærulið eftir að verjandi kvennanna krafðist frávísunar hans. Ekki sammála að lögregla hafi skipað þeim að yfirgefa skipin Þær neituðu sök í málinu og kröfðust sýknu. Við aðalmeðferð málsins báru þær báðar fyrir sig að þær hefðu farið um borð í bátana af illri nauðsyn en dagana á undan höfðu þær mótmælt hvalveiðum af hafnarbakkanum. „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn, fyrst að enginn var að grípa til aðgerða til að stöðva þennan skaða og þess vegna settist ég í mastur hvalbátsins á friðsaman hátt og án þess að valda skaða eða skemmdum,“ sagði Anahita meðal annars þegar tekin var af henni skýrsla fyrir dómi. Þá héldu þær því báðar fram að þær hefðu engin skýr fyrirmæli fengið frá lögregu um að yfirgefa tunnurnar. Því hefðu þær ekki brotið gegn lögreglulögum með því að fara ekki að fyrirmælum lögreglu.
Mótmæli í tunnum Hvals 8 og 9 Tjáningarfrelsi Dómsmál Hvalveiðar Sjávarútvegur Tengdar fréttir „Það er ekki hægt að muna allan þennan djöful“ Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., segir rök sín fyrir að kæra tvo aðgerðarsinna fyrir húsbrot í kjölfar mótmæla þeirra á hvalveiðibátum vera til að fæla aðra frá því að gera slíkt. 22. janúar 2026 12:01 Mest lesið Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Erlent Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Innlent Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Erlent Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Erlent Fleiri fréttir Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Grunaður um að ofsækja son sinn sem sleit á öll tengsl Átta vilja vera forstjóri Hafró Eldur kviknaði í veitingastað í nýja miðbænum á Selfossi Erfitt að fullyrða nokkuð um orsakasamhengi milli 4G og fæðingartíðni Tónlistarskólar FÍH og Eddu Borg sameinast í þéttum takti Handtökur í tengslum við ræktun og þrjú skotvopn haldlögð Séra Friðrik fær ekki að rísa strax Sjá meira
„Það er ekki hægt að muna allan þennan djöful“ Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., segir rök sín fyrir að kæra tvo aðgerðarsinna fyrir húsbrot í kjölfar mótmæla þeirra á hvalveiðibátum vera til að fæla aðra frá því að gera slíkt. 22. janúar 2026 12:01