Samgöngumál á Suðurlandi Þórir N. Kjartansson Vík skrifar 15. febrúar 2026 21:32 Nú liggur fyrir Alþingi og Umhverfis og Samgöngunefnd ný samgönguáætlun. Fyrir mig og marga fleiri Sunnlendinga sem höfum áhuga á bættum og öruggari samgöngum eru það mikil vonbrigði að engin verk sem kveður að skuli vera á áætlun á svæðinu allt frá Ölfusá og austur í Hornafjörð á fyrsta hluta áætlunarinnar. Það eru 400 km frá Selfossi til Hafnar í Hornafirði, án hafna og flugvalla, sem hægt er að kalla því nafni og þarf því algerlega að treysta á vegina til allra flutninga að og frá. Svæði sem nánast er heill landsfjórðungur og auk þess sá hluti landsins og hringvegarins sem er með langsamlega mestu umferðina á lítið sem ekkert að gera í nýframkvæmdum næstu 5-6 árin. Óhjákvæmilegt er að líta til þess að ekkert viðlíka stórt svæði á landinu þarf að byggja alla fólks og vöruflutninga eingöngu á samgöngum á landi sem þá um leið er undirstaða alls atvinnulífs þeirra byggða sem hér um ræðir. Göng undir Reynisfjall, sem lengi hafa verið til umræðu og eru ekki nema rúmlega kílómeters löng ásamt 11 km aðliggjandi láglendisvegi á sléttu og tiltölulega góðu landi væru gríðarleg samgöngubót. Á þetta borðleggjandi mál er lítt eða ekki minnst í nýju áætluninni, sem er hreint með ólíkindum. Á þessu væri hægt að byrja með stuttum fyrirvara. Veglínan löngu komin inn á aðalskipulag Mýrdalshrepps og talsverðum rannsóknum ásamt umhverfismati lokið. Þessi göng myndu taka af einn hættulegasta kafla hringvegarins, þ.m.t. 5 km. kafla um erfiðar brekkur og svæði sem alþekkt er fyrir miklar og hættulegar vindhviður og vetrarfærð, þar sem ótaldir bílar hafa fokið út af veginum á liðnum árum. Þá má einnig nefna hættu af grjóthruni úr hamrabeltum Reynisfjalls, eins og nýleg dæmi sanna. Óhætt er að segja að hjá atvinnubílstjórum sé þetta illræmdasti kafli vegarins allar götur frá Kömbum austur á Reyðarfjörð. Um þennan illviðrakafla eru t.d. skólabörnin í Mýrdalnum keyrð alla virka daga vetrarins að og frá skóla. Yrði af þessari framkvæmd myndu umferðartafir vegna vegalokana minnka stórlega eins og kemur fram í skýrslu Rannsóknarmiðstöðvar Háskólans á Akureyri um gagnsemi og arðsemi jarðgangna en þar má sjá að vetrarlokanir á þessum kafla sem göngin myndu taka af, eru næstur á eftir vetrarlokunum um Öxnadalsheiði á árabilinu 2010-2020. Þá myndi þessi framkvæmd flytja veginn í útjaðar Víkurþorps en nú fer þjóðvegurinn í gegnum mitt þorpið en sumarumferð þar getur náð allt að 7000 bílum á sólarhring. Þar hefur oft legið við alvarlegum slysum á undanförnum árum. Skrifari þessa pistils er félagi í áhugamannahópi um bættar samgöngur í Mýrdal. Samgöngubætur sem myndu koma til góða öllum þeim sem leið eiga um Suðurlandið ásamt öllum suð-austurhluta landsins allt til Egilsstaða. Þarna er allt að vinna en litlu sem engu fórnað á móti. Í þessum áhugahópi eru heimamenn sem gjörþekkja aðstæður af eigin raun yfir langt árabil. Þar eru t.d. fyrrverandi vöruflutninga og fólksflutningabílstjórar, skólabílstjórar, f.v. lögregluvarðstjóri og f.v. yfirverkstjóri Vegagerðarinnar í Vík. Að óreyndu trúum við ekki öðru en að þingmenn Suðurkjördæmis knýi fram í meðförum þingsins, breytingar á þessari samgönguáætlun í þá veru að gera hlut kjördæmisins meiri en þar er lagt upp með. Höfundur er félagi í áhugamannahópi um bættar samgöngur í Mýrdal. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mýrdalshreppur Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar