„Það gekk alls konar á en ég er sátt við mína kosningabaráttu“ Smári Jökull Jónsson skrifar 15. febrúar 2026 16:10 Ingibjörg á flokksþinginu í dag. Vísir/Lýður Valberg Ingibjörg Isaksen þingflokksformaður Framsóknarflokksins segir alls konar hafa gengið á í kosningabaráttu til formanns flokksins. Hún segist þakklát fyrir þann stuðning sem hún fékk og nú sé mikilvægt að fylkja sér á bakvið nýja forystu og vinna saman.
Ingibjörg beið lægri hlut í formannskosningu gegn Lilju Alfreðsdóttur. Ingibjörg hlaut 42% atkvæða í kosningunni. Fréttamaður Sýnar, Rafn Ágúst Ragnarsson, ræddi við Ingibjörgu þegar úrslitin voru ljós. „Ég var að vonast eftir annarri niðurstöðu en svona er lífið. Maður lærir líka af þessari reynslu og tekur þennan ósigur með sér og kemur bara enn sterkari til baka,“ sagði Ingibjörg. Kosningabaráttan hefur verið nokkuð hörð og hafði Vísir eftir heimildum fyrir flokksþingið að óheiðarleiki og ógnarstjórnartilburðir hafi verið viðhafðir að tjaldabaki. Ingibjörg segir að nú verði að axla þá ábyrgð að vinna fyrir hagsmuni þjóðarinnar og sagði að svo yrði gert. „Það gekk alls konar á en ég er sátt við mína kosningabaráttu. Ég er ótrúlega þakklát fyrir fólkið sem gaf sér tíma til að koma hérna og ég veit að þetta er mikill kostnaður til dæmis fyrir landsbyggðarfólk. Ég er þakklát fyrir stuðninginn. Þetta er búið að vera dýrmætt og góð reynsla.“
Flokksþing Framsóknar 2026 Framsóknarflokkurinn Tengdar fréttir Lilja Alfreðsdóttir er nýr formaður Framsóknarflokksins Lilja Alfreðsdóttir hefur verið kjörinn nýr formaður Framsóknarflokksins og er hún fyrsta konan sem hlýtur kjör sem formaður í rúmlega 109 ára sögu flokksins. Atkvæðagreiðsla fór fram á 38. flokksþingi Framsóknar sem haldið er um helgina. 15. febrúar 2026 15:33 Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Innlent Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Erlent Fleiri fréttir Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Sjá meira
Lilja Alfreðsdóttir er nýr formaður Framsóknarflokksins Lilja Alfreðsdóttir hefur verið kjörinn nýr formaður Framsóknarflokksins og er hún fyrsta konan sem hlýtur kjör sem formaður í rúmlega 109 ára sögu flokksins. Atkvæðagreiðsla fór fram á 38. flokksþingi Framsóknar sem haldið er um helgina. 15. febrúar 2026 15:33