Tryggjum orkuskipti og almannahag Oddný Harðardóttir og Stefán Jón Hafstein skrifa 14. febrúar 2026 12:02 Eftirspurn eftir endurnýjanlegri orku er sífellt að aukast hér á landi. En í hvað á orkan að fara? Samkvæmt núgildandi lögum er ekkert sem hamlar því að raforku sem framleidd er hér á landi verði varið til stórframkvæmda sem auka losun gróðurhúsalofttegunda. Enga forgangsröðun í þágu orkuskipta eða orkuöryggis almennings er þar heldur að finna. Við þessu þarf að bregðast strax með lagasetningu sem raðar orkuskiptum og orkuöryggi almennings fremst. Orkuþörf heimila á Íslandi og minni orkunotenda er samanlagt um 20% raforkunnar. Megnið af orkuframleiðslunni, eða rétt um 80%, fer til stórnotenda. Á haustfundi Landsvirkjunar 2025 kom fram víðtækur pólitískur vilji til þess að ríkið og samfélagið í heild forgangsraði orkunni okkar betur þar sem heimili og orkuskipti verði tekin fram yfir nýja stórnotendur sem bjóða upp orkuverð á samkeppnisforsendum. Þessum vilja þarf að fylgja eftir og staðfesta með lögum. Tryggja þarf almenningi í landinu örugga orku á verði sem skilar þjóðinni réttmætum ávinningi af sameiginlegum auðlindum og forgangsraða einnig orkuvinnslu í þágu orkuskipta. Við Íslendingar eigum mikla hagsmuni undir því að allar þjóðir dragi úr losun gróðurhúsalofttegunda. Það varðar hvorki meira né minna en hvort hér verði yfirleitt hægt að búa. Öll frekari hlýnun eykur líkur á að sjávarstraumar breytistsem getur valdið því að Ísland verði óbyggilegt.Mikið er undir og við Íslendingar þurfum að gefa gott fordæmi og fá aðrar þjóðir með okkur ef takast á að stöðva alvarlega þróun í loftlagsmálum. Við undirrituð tökum því undir áskorun samtakanna Aldins gegn loftlagsvá, þar sem skorað er á ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur að leggja strax fram fumvarp á Alþingi um forgang orkuskipta og orkuöryggis almennings við framleiðslu raforku. Höfundar eru félagar í Aldin - samtökum eldra fólks gegn loftslagsvá. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stefán Jón Hafstein Oddný G. Harðardóttir Orkumál Orkuskipti Umhverfismál Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Eftirspurn eftir endurnýjanlegri orku er sífellt að aukast hér á landi. En í hvað á orkan að fara? Samkvæmt núgildandi lögum er ekkert sem hamlar því að raforku sem framleidd er hér á landi verði varið til stórframkvæmda sem auka losun gróðurhúsalofttegunda. Enga forgangsröðun í þágu orkuskipta eða orkuöryggis almennings er þar heldur að finna. Við þessu þarf að bregðast strax með lagasetningu sem raðar orkuskiptum og orkuöryggi almennings fremst. Orkuþörf heimila á Íslandi og minni orkunotenda er samanlagt um 20% raforkunnar. Megnið af orkuframleiðslunni, eða rétt um 80%, fer til stórnotenda. Á haustfundi Landsvirkjunar 2025 kom fram víðtækur pólitískur vilji til þess að ríkið og samfélagið í heild forgangsraði orkunni okkar betur þar sem heimili og orkuskipti verði tekin fram yfir nýja stórnotendur sem bjóða upp orkuverð á samkeppnisforsendum. Þessum vilja þarf að fylgja eftir og staðfesta með lögum. Tryggja þarf almenningi í landinu örugga orku á verði sem skilar þjóðinni réttmætum ávinningi af sameiginlegum auðlindum og forgangsraða einnig orkuvinnslu í þágu orkuskipta. Við Íslendingar eigum mikla hagsmuni undir því að allar þjóðir dragi úr losun gróðurhúsalofttegunda. Það varðar hvorki meira né minna en hvort hér verði yfirleitt hægt að búa. Öll frekari hlýnun eykur líkur á að sjávarstraumar breytistsem getur valdið því að Ísland verði óbyggilegt.Mikið er undir og við Íslendingar þurfum að gefa gott fordæmi og fá aðrar þjóðir með okkur ef takast á að stöðva alvarlega þróun í loftlagsmálum. Við undirrituð tökum því undir áskorun samtakanna Aldins gegn loftlagsvá, þar sem skorað er á ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur að leggja strax fram fumvarp á Alþingi um forgang orkuskipta og orkuöryggis almennings við framleiðslu raforku. Höfundar eru félagar í Aldin - samtökum eldra fólks gegn loftslagsvá.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar