Gagnrýnir hversu seint og illa endurreisn Grindavíkur gengur Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 14. febrúar 2026 13:04 Sólveig Þorvaldsdóttir, sem er meðal annars doktor í jarðskjálftaverkfræði og fyrrverandi forstjóri Almannavarna ríkisins. Aðsend Sólveig Þorvaldsdóttir, doktor í jarðskjálftaverkfræði og fyrrverandi forstjóri Almannavarna ríkisins gagnrýnir hversu seint og illa endurreisnin í Grindavík gengur. Hún segir að það vanti stofnuna umhverfi til að taka utan um endurreisnina.
Sólveig, sem segist hafa mikinn áhuga á náttúruhamförum hefur fylgst mjög vel með öllu í Grindavík í kjölfar eldgosanna á svæðinu og þeirri uppbyggingu, sem unnið er að. En hvernig upplifir hún ástandið eins og það er í dag? „Mér finnst það alveg skelfilegt að horfa á ástandið í Grindavík og þá er ég að tala um það að okkur vantar algjörlega stofnuna umhverfi til að taka utan um endurreisnina. Ég heyri það á fundum að íbúar eru alltaf að segja sömu hlutina aftur og aftur en það er ekkert kerfi, sem tekur á móti þessu og virkilega vinnur úr þessu með fólkinu,” segir Sólveig. Hverju er þá um að kenna fyrst þetta gengur svona illa? „Yfirvöldum vegna þess að það eru yfirvöld, sem búa til stofnuna umhverfi og nú getum við talað um alla flokka. Það eru þrír flokkar núna í ríkisstjórn og það voru aðrir þrír flokkar í ríkisstjórn, þannig að það er kannski erfitt að benda á einhvern einn flokk en þau ættu að taka sig saman og laga þessi mál”. Sólveig segir að það sé fyrst og fremst yfirvöldum um að kenna hvað endurreisnin í Grindavík gengur hægt fyrir sig.Vísir/VILHELM Og þetta að lokum frá Sólveigu. „Það á að veita þessu fólki eins og öðru fólki í landinu og framtíðar sveitarfélögum, sem eiga eftir að lenda í þessu sama, það á að veita þeim umgjörð þannig að það sé sómasamlega staðið að þessu,” segir Sólveig. En verður byggð áfram í Grindavík eða hvað? „Það er bara þeirra að ákveða það og fólksins, sem kemur þarna að máli. Það er ekki mitt að ákveða það.”
Grindavík Almannavarnir Eldgos á Reykjanesskaga Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Fleiri fréttir Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm Sjá meira