Ratcliffe þykir leitt að hafa „móðgað sumt fólk“ Sindri Sverrisson skrifar 12. febrúar 2026 15:00 Spjótin beinast að Sir Jim Ratcliffe eftir ummæli hans í garð innflytjenda. Getty/Ash Donelon Sir Jim Ratcliffe, hinn umsvifamikli jarðeigandi á Íslandi og einn eigenda Manchester United, hefur sent frá sér yfirlýsingu eftir að ummæli hans um innflytjendur í Bretlandi féllu í grýttan jarðveg.
Yfirlýsingin ber reyndar ekki annað með sér en að Ratcliffe standi við það sem hann sagði en honum „þykir leitt að orðaval sitt hafi móðgað sumt fólk í Bretlandi og Evrópu“. Hinn 73 ára gamli Ratcliffe hefur verið harðlega gagnrýndur eftir viðtal við Sky News þar sem hann kvartaði yfir áhrifum gríðarlegs fjölda innflytjenda í Bretlandi sem „gert hefðu landið að sinni nýlendu“. Enska knattspyrnusambandið er samkvæmt heimildum BBC að skoða hvort að ummæli Ratcliffe skaði ímynd fótboltans og séu refsiverð. Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, sagði ummæli Ratcliffe móðgandi og röng, og að hann ætti að biðjast afsökunar. Fjöldi fleiri stjórnmálamanna hefur gagnrýnt Ratcliffe, auk til að mynda félags múslimskra stuðningsmanna Manchester United. Þá hafa breskir fjölmiðlar bent á það að Ratcliffe fór með fleipur þegar hann fullyrti að íbúum Bretlands hefði fjölgað um 12 milljónir frá árinu 2020. Hið rétta er að þeim fjölgaði úr 66,7 milljónum í 69,4 milljónir, eða um minna en þrjár milljónir. Ratcliffe, sem sjálfur er innflytjandi í Mónakó eftir að hafa flutt heimilisfesti sína í skattaparadísina árið 2020, baðst eins og fyrr segir afsökunar á orðavali sínu. Hann sagði hins vegar mikilvægt að ræða um stjórnun innflytjendamála sem ætti að styðja við hagvöxt. „Tilgangur minn var að leggja áherslu á að stjórnvöld verða að stýra fólksflutningum samhliða fjárfestingu í færni, iðnaði og störfum svo að allir fái notið langtímavelmegunar. Það er afar mikilvægt að við höldum áfram opinskárri umræðu um þær áskoranir sem Bretland stendur frammi fyrir,“ sagði Ratcliffe í yfirlýsingu sinni.
Enski boltinn Manchester United Mest lesið Braut kynferðislega á Andy Carroll Enski boltinn Selfyssingar syrgja Sport Gæti þurft að skipta um herbergisfélaga Fótbolti Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Dauði varnarmannsins Fótbolti Yoro ekki til Íslands Fótbolti Elías lengi frá eftir aðgerð á nýra Fótbolti Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Fótbolti Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Fleiri fréttir Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Barry sendi Everton upp í fimmta sæti og Newcastle vann Hull Skytturnar skotnar í kaf í Brighton Tottenham sökk dýpra og enn án sigurs í fimm leikjum Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands Sjá meira