Lilja Dögg leiðtogi með tíma, fókus og tengsl við landið allt Jónína Brynjólfsdóttir og Hjálmar Bogi Hafliðason skrifa 11. febrúar 2026 22:31 Framsóknarfólk stendur frammi fyrir mikilvægri ákvörðun. Val á formanni er ekki aðeins val á einstaklingi heldur vinnubrögðum og forgangsröðun. Við, undirrituð, lýsum yfir stuðingi við Lilju Dögg Alfreðsdóttir til formennsku í Framsóknarflokknum. Það felast tækifæri í því að hún situr ekki á þingi enda starf formanns tímafrekt, krefjandi og í raun fullt starf en sjálf þekkjum við setu á Alþingi og störfum í sveitarstjórn. Verkefnin framundan kalla á nærveru, samtal, skipulag og forystu. Bæði innan flokks og út á við. Þekking og reynsla Lilju Daggar mun þar koma að góðu. Sameiginleg samvinnusýn Þá gefst tími til að ferðast um landið og rækta ræturnar, hlusta á grasrótina og ræða meðal annars við sveitarstjórnarfólk og byggja upp traust til lengri tíma. Fyrir okkur sem störfum fjarri höfuðborgarsvæðinu eru tengsl við formann stjórnmálaflokks mikilvæg, sýnileiki og aðgengileiki í senn. Það hefur Lilja Dögg sýnt í verki og vill vera í nánum tengslum við fólk um allt land. Tækifærið að vera utan þings veitir svigrúm til að horfa á heildarmyndina. Jafnframt að leiða stefnumótun, samhæfa starf flokksins, styrkja skipulag starfsins og undirbúa kosningar. Það krefst athygli, að forgangsröðun sé skýr og tíma til að byggja upp teymið og sameiginlega samvinnusýn. Í anda framsóknar Reynsla okkar af starfi með Lilju Dögg er yfirvegun og traustur leiðtogi sem hlustar og vinnur af festu. Sömuleiðis skilningur á mikilvægi landsbyggðanna sem burðarstoð íslensks samfélags. Hún hefur dregið úr skautun í umræðunni um höfuðborgarsvæði og landsbyggðir, iðkar samvinnu og jafnvægi í anda framsóknar. Við teljum að Framsókn standi á tímamótum og felst styrkur flokksins í samheldni, skýrri sýn og öflugri forystu. Að hafa formann sem hefur tíma, fókus og orku til að sinna starfinu af heilum hug. Lilja Dögg er sú manneskja. Þess vegna styðjum við hana til formennsku í Framsóknarflokknum. Sannfærð um að hún geti leitt flokkinn af ábyrgð, yfirvegun og með landið allt í huga. Höfundar eru forseti sveitarstjórnar Múlaþings og forseti sveitartjórnar Norðurþings Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Framsóknarflokkurinn Jónína Brynjólfsdóttir Mest lesið Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Skoðun Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Húsnæðisstefnan sem gerði ungt fólk að leiguliðum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Veist þú í raun hvernig gervigreind virkar? Bjarki Sigurjónsson Thorarensen skrifar Sjá meira
Framsóknarfólk stendur frammi fyrir mikilvægri ákvörðun. Val á formanni er ekki aðeins val á einstaklingi heldur vinnubrögðum og forgangsröðun. Við, undirrituð, lýsum yfir stuðingi við Lilju Dögg Alfreðsdóttir til formennsku í Framsóknarflokknum. Það felast tækifæri í því að hún situr ekki á þingi enda starf formanns tímafrekt, krefjandi og í raun fullt starf en sjálf þekkjum við setu á Alþingi og störfum í sveitarstjórn. Verkefnin framundan kalla á nærveru, samtal, skipulag og forystu. Bæði innan flokks og út á við. Þekking og reynsla Lilju Daggar mun þar koma að góðu. Sameiginleg samvinnusýn Þá gefst tími til að ferðast um landið og rækta ræturnar, hlusta á grasrótina og ræða meðal annars við sveitarstjórnarfólk og byggja upp traust til lengri tíma. Fyrir okkur sem störfum fjarri höfuðborgarsvæðinu eru tengsl við formann stjórnmálaflokks mikilvæg, sýnileiki og aðgengileiki í senn. Það hefur Lilja Dögg sýnt í verki og vill vera í nánum tengslum við fólk um allt land. Tækifærið að vera utan þings veitir svigrúm til að horfa á heildarmyndina. Jafnframt að leiða stefnumótun, samhæfa starf flokksins, styrkja skipulag starfsins og undirbúa kosningar. Það krefst athygli, að forgangsröðun sé skýr og tíma til að byggja upp teymið og sameiginlega samvinnusýn. Í anda framsóknar Reynsla okkar af starfi með Lilju Dögg er yfirvegun og traustur leiðtogi sem hlustar og vinnur af festu. Sömuleiðis skilningur á mikilvægi landsbyggðanna sem burðarstoð íslensks samfélags. Hún hefur dregið úr skautun í umræðunni um höfuðborgarsvæði og landsbyggðir, iðkar samvinnu og jafnvægi í anda framsóknar. Við teljum að Framsókn standi á tímamótum og felst styrkur flokksins í samheldni, skýrri sýn og öflugri forystu. Að hafa formann sem hefur tíma, fókus og orku til að sinna starfinu af heilum hug. Lilja Dögg er sú manneskja. Þess vegna styðjum við hana til formennsku í Framsóknarflokknum. Sannfærð um að hún geti leitt flokkinn af ábyrgð, yfirvegun og með landið allt í huga. Höfundar eru forseti sveitarstjórnar Múlaþings og forseti sveitartjórnar Norðurþings
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar