Sprengdu hurðina af brynvörðum bíl Samúel Karl Ólason skrifar 10. febrúar 2026 09:27 Að minnsta kosti sex þungvopnaðir ræningjar réðust á brynvarðan bíl. Lögreglan segir þá ekki hafa tekið peninga úr bílnum en þeir fjarlægðu eitthvað úr honum. Skjáskot Grímuklæddir og þungvopnaðir glæpamenn sprengdu hurðina af brynvörðum bíl á hraðbraut í suðurhluta Ítalíu í gærmorgun. Þá skutu mennirnir úr Kalashnikov-árásarrifflum á lögregluþjóna þegar þeir voru á flótta eftir ránið.
Mildi þykir að lögregluþjónarnir sem mættu ræningjunum hafi lifað af, samkvæmt ítölsku fréttaveitunni ANSA. Umsátrið var gert snemma morguns í gær milli bæjanna Lecce og Brindisi í Puglia-héraði á Ítalíu. Myndbönd af vettvangi sýna að minnsta kosti sex ræningja, sumir klæddir hvítum heilgöllum, taka þátt í ráninu. Sumir voru vopnaðir rifflum og skýldu sér bakvið bíla á meðan aðrir fóru aftan að bílnum og komu sprengju fyrir á honum. Afturhurð bílsins sprengdu þeir svo af með miklum látum. Armed robbery of an armored cash van on the Lecce-Brindisi highway in Italy. Robbers in white suits block the road with cars, approach the van, and detonate explosives to blow open its doors amid smoke and chaos. pic.twitter.com/JaUW0MyquS— AlexandruC4 (@AlexandruC4) February 9, 2026 Í frétt The Times segir að mennirnir hafi fjarlægt eitthvað úr bílnum og flutt um borð í bíla sem virðast hafa verið dulbúnir sem lögreglubílar. Yfirmaður lögreglunnar í Lecce segir þó að ræningjarnir hafi ekki náð peningum úr bílnum, þar sem sjálfvirkt öryggiskerfi í honum hafi komið í veg fyrir það. Þá kveiktu ræningjarnir í sendiferðabíl sem þeir notuðu við framkvæmd ránsins en honum var stolið af bílaleigu í síðustu viku. Lögreglan segir tvo ræningja hafa verið stöðvaða á flótta og voru þeir handteknir. Þeir eru sagðir 38 ára og 61 árs gamlir. Báðir munu hafa verið stöðvaðir eftir að þeir yfirgáfu bíl sinn og reyndu að flýja fótgangandi yfir akur. Hinna ræningjanna er enn leitað. Sambærilegt rán var framið árið 2024 í einungis nokkurra kílómetra fjarlægð frá ránstaðnum í gær. Þá komust vopnaðir ræningjar undan með um þrjár milljónir evra.
Ítalía Erlend sakamál Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Fleiri fréttir Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Sjá meira