Næsti formaður Framsóknar Salvör Sól Jóhannsdóttir skrifar 10. febrúar 2026 07:32 Ég er nýbyrjuð að pæla í pólitík. Kannski er það eðlilegt þar sem ég nýkomin með kosningarétt. Þá fer maður að hugsa hvaða stjórnmálafólki ég treysti fyrir minni framtíð. Sem ung manneskja á landsbyggðinni veit ég að tækifærin koma ekki alltaf til manns heldur þarf að hafa fyrir hlutunum. Leggja inn vinnuna. En það skiptir líka máli að það séu leiðtogar í stjórnmálunum með skýra sýn fyrir framtíðina. Leiðtogar sem styðja við landsbyggðina og höfuðborgina og skapa tækifæri fyrir ungt fólk. Það skiptir mig máli. Núna eru kosningar um formann og framtíð Framsóknar. Fyrir mig skiptir máli að formaður flokksins hafi góða sýn á framtíð Íslands og þar með mína. Ég kýs Lilju Sem nemi í sjúkraliðanámi sem er jafnframt að taka stúdentspróf finn ég beint fyrir þeim jákvæðu breytingum sem urðu í menntakerfinu þegar Lilja Alfreðs var menntamálaráðherra. Hún studdi við iðnnám um allt land og lagði áherslu á að það hafi sömu virðingu og bóknám. Breytingarnar sem hún stóð fyrir gerðu mér í raun kleift að stunda þetta nám og velja leið sem hentar mér. Lilja vill að ungt fólk hafi jöfn tækifæri til náms sama hvar það býr. Það skiptir mig og vini mína máli að þurfa ekki að flytja í burtu frá Vestfjörðum til að stunda nám. Eitt af því sem stendur upp úr er áhersla Lilju á að koma íslenskunni inn í tæknina. Fyrir okkur sem erum að alast upp í stafrænum heimi er mikilvægt að geta notað íslensku í nýrri tækni. Lilja hefur lagt sitt af mörkum til að íslenskan sé í fyrsta sæti, til dæmis með því að koma íslenskunni inn í streymisveitur eins og Disney+ og í gervigreindina. Framsókn þarf leiðtoga sem hugsar um framtíðina og setur ungt fólk í forgang. Ég trúi því að Lilja Alfreðsdóttir sé best í því að leiða Framsókn inn í nýja tíma. Hún skilur mikilvægi þess að jafna tækifæri ungs fólks, hefur unnið að góðum breytingum og getur byggt Framsókn upp fyrir næstu kynslóð. Það skiptir mig máli. Þess vegna kýs ég Lilju. Höfundur er átján ára nemi við Menntaskólann á Ísafirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Framsóknarflokkurinn Mest lesið Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Skoðun Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Húsnæðisstefnan sem gerði ungt fólk að leiguliðum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Veist þú í raun hvernig gervigreind virkar? Bjarki Sigurjónsson Thorarensen skrifar Sjá meira
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar