„Eins og hann sé að grátbiðja um að verða seldur“ Sindri Sverrisson skrifar 9. febrúar 2026 11:00 Michael Oliver sýnir Cristian Romero rauða spjaldið, í leiknum gegn Manchester United á laugardaginn. Getty/James Gill „Það er leiðinlegt að segja það en þetta er svolítið Tottenham-legt,“ sagði Kjartan Henry Finnbogason í Sunnudagsmessunni, í umræðum um stöðuna á Tottenham og fyrirliðann Cristian Romero sem nældi sér enn á ný í rautt spjald um helgina.
Romero gagnrýndi stjórn Tottenham harðlega með skrifum sínum á samfélagsmiðlum eftir að félagaskiptaglugginn lokaðist í síðustu viku. Þar sagði hann aðeins ellefu leikmenn til taks og að það væri ótrúleg staða sem sýndi vanvirðingu. „Það er mjög sérstakt af fyrirliðanum að gera það,“ sagði Kjartan Henry í Messunni í gær þar sem rauða spjaldið sem Romero fékk gegn Manchester United á laugardaginn var einnig skoðað. Klippa: Romero með sjálfseyðingarhvöt? „Hann þynnti hópinn sjálfur,“ sagði Kjartan og bætti við: „Þetta er bara ljót tækling og lítur illa út fyrir hann. En þetta er ekki fyrsta rauða spjaldið hans á þessu tímabili og gerir það auðvitað að verkum að hann þynnir hópinn í næstu fjórum leikjum.“ Romero hefur fengið rautt spjald oftast allra í Tottenham-liðinu síðan hann kom árið 2021, eða sjö sinnum. Arnar Gunnlaugsson velti því fyrir sér hvort að þessi 27 ára argentínski miðvörður væri bara búinn að fá nóg af því að vera hjá Tottenham: „Mér líður eins og hann sé að grátbiðja um að verða seldur frá klúbbnum. Það er svo lítil skynsemi í því sem hann er búinn að gera á síðustu mánuðum. Bæði með yfirlýsingum á samfélagsmiðlum og svo því hvernig hann spilar leikinn. Úber æstur, óyfirvegaður og allt of miklar tilfinningar og læti. Það kæmi mér ekki á óvart ef hann yrði látinn fara í vor,“ sagði Arnar en umræðuna má sjá í spilaranum hér að ofan.
Enski boltinn Tengdar fréttir Arnar með „óbragð í munni“ eftir skort á heilbrigðri skynsemi Sérfræðingarnir í Sunnudagsmessunni voru sammála um að markið sem Rayan Cherki skoraði í lok uppbótartíma, fyrir Manchester City gegn Liverpool, hefði átt að fá að standa. Reglurnar styðji þó ákvörðun dómarans. 9. febrúar 2026 09:00 Sjáðu fjórða sigur United, þrennu Palmer og tvennu Gyökeres Mörkin úr stórleikjum gærdagsins í ensku úrvalsdeildinni má sjá hér fyrir neðan. Manchester United fagnaði fjórða sigrinum í röð, Cole Palmer skoraði þrennu í fyrri hálfleik fyrir Chelsea og Viktor Gyökeres kom boltanum tvívegis í netið fyrir Arsenal. 8. febrúar 2026 13:18 Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Arbeloa í brasi Enski boltinn Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira
Arnar með „óbragð í munni“ eftir skort á heilbrigðri skynsemi Sérfræðingarnir í Sunnudagsmessunni voru sammála um að markið sem Rayan Cherki skoraði í lok uppbótartíma, fyrir Manchester City gegn Liverpool, hefði átt að fá að standa. Reglurnar styðji þó ákvörðun dómarans. 9. febrúar 2026 09:00
Sjáðu fjórða sigur United, þrennu Palmer og tvennu Gyökeres Mörkin úr stórleikjum gærdagsins í ensku úrvalsdeildinni má sjá hér fyrir neðan. Manchester United fagnaði fjórða sigrinum í röð, Cole Palmer skoraði þrennu í fyrri hálfleik fyrir Chelsea og Viktor Gyökeres kom boltanum tvívegis í netið fyrir Arsenal. 8. febrúar 2026 13:18