Arnar með „óbragð í munni“ eftir skort á heilbrigðri skynsemi Sindri Sverrisson skrifar 9. febrúar 2026 09:00 Erling Haaland togar hér í Dominik Szoboszlai eftir að Ungverjinn hafði byrjað á að toga í Norðmanninn. Getty/Michael Regan Sérfræðingarnir í Sunnudagsmessunni voru sammála um að markið sem Rayan Cherki skoraði í lok uppbótartíma, fyrir Manchester City gegn Liverpool, hefði átt að fá að standa. Reglurnar styðji þó ákvörðun dómarans.
City var 2-1 yfir og heimamenn á Anfield búnir að senda alla fram til að freista þess að jafna metin, þegar City vann boltann og Rayan Cherki renndi honum frá miðju og í mark Liverpool. Erling Haaland og Dominik Szoboszlai eltu boltann og hefðu báðir getað náð honum en Szoboszlai togaði í Haaland sem svaraði með því að toga á móti í Szoboszlai og hindra för hans. Dómari leiksins ákvað að dæma mark Cherki gott og gilt og hefði betur haldið sig við þá ákvörðun, að mati Arnars Gunnlaugssonar og Kjartans Henrys Finnbogasonar, eins og sjá má í spilaranum hér að neðan. Klippa: Havarí í uppbótartíma á Anfield „Szoboszlai gerir bara mistök. Samkvæmt reglunum er þetta rautt spjald og ég skil mjög vel að VAR verði að gera þetta. En stundum vill maður heilbrigða skynsemi í fótbolta. Allir leikmenn og stuðningsmenn eru að bíða eftir þessu marki. Útkljáið þetta svona og enginn myndi röfla neitt. En þetta var hárréttur dómur,“ sagði Arnar um það að markið skyldi dæmt af eftir myndbandsskoðun. „Það hefðu allir farið heim ánægðari [ef markið hefði fengið að standa],“ sagði Arnar en Szoboszlai er nú á leiðinni í leikbann vegna rauða spjaldsins. „Mér finnst ég bara vera að fá brain freeze. Af hverju ekki hagnaður? Af hverju er þetta ekki bara mark?“ sagði Kjartan Henry og nafni hans, Kjartan Atli Kjartansson, benti þá á að Szoboszlai hefði átt möguleika á að ná boltanum og Haaland tekið þann möguleika af honum. Þess vegna bæri að dæma markið ógilt en gefa Szoboszlai rautt spjald. „Þetta var allt hárrétt en við erum með óbragð í munninum og örugglega stuðningsmenn og leikmenn líka,“ sagði Arnar.
Enski boltinn Liverpool FC Manchester City Mest lesið „Stoltur af henni og hún á þetta mjög mikið skilið“ Sport Úrvalsdeildarfélög undirbúa málsókn gegn City Sport Haaland mætir ekki í viðtal eftir tíðindi dagsins Sport „Getum ekki mætt í neinn leik og leyft okkur að slaka á“ Sport Celtic og Rangers áfrýja Sport „Höfum talað digurbarkalega um það“ Fótbolti Internetið gerir grín að Caleb Williams Sport „Sagði bara við hann, ég skal taka þetta“ Sport Nafnarnir í KA sáu um Val Sport Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Íslenski boltinn Fleiri fréttir Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Barry sendi Everton upp í fimmta sæti og Newcastle vann Hull Sjá meira