Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Lovísa Arnardóttir skrifar 7. febrúar 2026 21:36 Selenskíj segir Bandaríkjamenn gera kröfu um að stríðinu verði lokið í júní. Vísir/EPA Volodomír Selenskíj forseti Úkraínu segir Bandaríkin hafa gefið Úkraínu og Rússlandi frest til loka júnímánaðar til að komast að samkomulag um frið. Hann sagði Rússum og Úkraínumönnum boðið til frekari viðræðna í Bandaríkjunum. Tveggja daga friðarviðræðum í Abu Dhabi lauk í gær án árangurs.
Í frétt Guardian er haft eftir Selenskíj að ríkisstjórn Donalds Trumps „muni líklega þrýsta“ á Úkraínu og Rússland að binda enda á stríðið fyrir byrjun sumars. „Þeir segja að þeir vilji klára allt fyrir júní,“ sagði Selenskíj við fréttamenn. „Þeir munu gera allt til að binda enda á stríðið og þeir vilja skýra tímaáætlun yfir alla atburði.“ Í þessari viku fóru síðan fram tveggja daga friðarviðræður undir forystu Bandaríkjanna í Abu Dhabi án nokkurrar niðurstöðu. Haft var þó eftir Kyrylo Búdanov, yfirmanni forsetaskrifstofu Úkraínu, að samningaviðræðurnar hefðu verið „raunverulega uppbyggilegar“. Viðræðunum í Abu Dhabu lauk í gær en Selenskíj sagði við blaðamenn að enn ætti eftir að leysa úr erfiðum málum. Það hefði þó verið rætt í fyrsta sinn að halda þríhliðafund í Bandaríkjunum og að mati Bandaríkjamanna eigi það að vera markmið að ljúka þeim fyrir júní, og stríðinu sömuleiðis. Hann bætti við: „Ef Rússar eru raunverulega tilbúnir að binda enda á stríðið, þá er virkilega mikilvægt að setja einhvern eindaga.“ Selensíkj sagði eftir viðræðurnar að Bandaríkjamenn hefðu lagt til að næsta umferð þríhliða viðræðna Rússa, Úkraínumanna og Bandaríkjamanna færu fram í Miami eftir viku. Hann sagði Úkraínu hafa staðfest þátttöku Í frétt Guardian er það rifjað upp að áður en Donald Trump tók við embætti lofaði hann að „binda enda á stríðið á 24 klukkustundum“. Síðar stakk sérstakur sendifulltrúi hans fyrir Úkraínu, Keith Kellogg, upp á því að báðir aðilar gætu náð samkomulagi innan 100 daga frá embættistöku Trumps. Eftir að það tókst ekki heldur setti Trump nýtt markmið um að binda enda á stríðið í ágúst í fyrra og í desember sagði hann svo að drög að samkomulagi um að binda enda á stríðið væru næstum „95 prósent tilbúin“.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Bandaríkin Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Sjá meira