„Hún hegðar sér eins og díva“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. febrúar 2026 22:31 Jutta Leerdam þótti fara fyrir strikið með því að mæta í einkaflugvél á Ólympíuleikanna. @juttaleerdam Hollenska skautakonan Jutta Leerdam flaug á Ólympíuleikana á Ítalíu í einkaþotu og hún fær harða gagnrýni fyrir það í heimalandi sínu.
Leerdam er sigurstrangleg í sinni bestu grein, 1000 metra skautahlaupi, en hún hefur unnið heimsmeistara- og Evrópumeistaratitla í henni og vann silfur í greininni á síðustu Ólympíuleikum í Peking 2022. „Öllum Hollendingum er farið að mislíka við hegðun hennar,“ sagði Johan Derksen í viðtali við Daily Mail. View this post on Instagram A post shared by Jake Paul (@jakepaul) Þessi 27 ára skautakona er einn stærsti prófíll íþróttarinnar. En hún er kannski þekktari fyrir lífið utan íssins en afrek sín á honum, en hún er með fimm milljónir fylgjenda á samfélagsmiðlinum Instagram. Samband hennar við heimþekkta YouTube-stjörnu og hnefaleikakappa, Jake Paul, kallar síðan á enn meiri athygli. Ferðamáti Leerdam á Ólympíuleikana er gagnrýndur í heimalandi hennar, Hollandi. Fyrrverandi atvinnumaður í fótbolta, Johan Derksen, er æfur. Hann er 77 ára og starfar sem íþróttafréttamaður í dag. „Hún ætti að vilja þetta af eigin hvötum. Hún lifir nú þegar eins og milljónamæringur, með einkaþotum og öllu tilheyrandi. Hegðun hennar er hræðileg að mínu mati, hún hegðar sér eins og díva. Ef ég væri þjálfari hennar myndi ég ekki þola það,“ sagði Derksen. Derksen dregur ekkert undan í gagnrýni sinni. Árið 2024 yfirgaf Leerdam stórliðið Jumbo-Visma. Ástæðan var meðal annars sögð vera sú að enginn væri stærri en liðið. Þá fannst þessari 27 ára konu hún knúin til að tjá sig um yfirlýsinguna. „Ég óska þeim alls hins besta, því ég veit að þeir eru að leita að styrktaraðilum og ég vil ekki vera fyrir. En nú er ég látin líta út eins og einhvers konar díva. Ég er alls ekki díva, ég er sigurvegari. Þeir kenna fordómum um mig,“ sagði Leerdam þá samkvæmt Sportnieuws. Leerdam keppir í 1000 metra og 500 metra skautahlaupi á Ólympíuleikunum. Mótið hefst fyrir hana á mánudag. View this post on Instagram A post shared by Jutta Leerdam (@juttaleerdam)
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Skautaíþróttir Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Strax aftur á sigurbraut Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Selfoss - Fram | Barist við botninn Keflavík - Stjarnan | Komast heimakonur á sigurbraut? Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Vikings er eina ósigraða liðið Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Jökull sagður á leið til Blika sem standa á tímamótum Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Dagskráin í dag: Bónus-deildin, Extraleikar, Lokasóknin og Arsenal Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Sjá meira