Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 7. febrúar 2026 13:03 Linda Ásdísardóttir, safnafræðingur hjá Byggðasafni Árnesinga á Eyrarbakka, sem flutti fróðlegan fyrirlestur um Grænland á opnu húsi hjá eldri borgurum á Selfossi. Magnús Hlynur Hreiðarsson Íbúi á Eyrarbakka, sem hefur heimsótt Grænland nokkrum sinnum hvetur Íslendinga til að heimsækja landið því fólkið þar sé svo blítt, gestrisið og stolt af landi sínu. Mótorhjól eru hins vegar alveg bönnuð í Grænlandi.
Linda Ásdísardóttir, safnafræðingur hjá Byggðasafni Árnesinga á Eyrarbakka, var gestur á opnu húsi hjá eldri borgurum á Selfossi á fimmtudaginn þar sem hún hélt fróðlegan fyrirlestur um Grænland, sem hún kallaði „Safnarúntur á Grænlandi“ en hún hefur verið töluvert í Grænlandi síðustu ár og þá aðallega, sem sjálfboðaliði á söfnum. En hvernig lýsir Linda íbúum á Grænlandi? „Fólkið er blítt og gestrisið og stolt og ánægt og landið algjörlega stórbrotið, allt er stórt og svolítið hrjóstugt en samtímis gjöfult. Hafið er þeirra þjóðbraut og þetta er miklu meira, hafið er líka partur af Grænlandi, það er ekki bara landið,” segir Linda. Þannig að þú mælir með Grænlandi, að fara þangað? „Ég mæli alveg tvímælalaust með að fólk fari, það þarf ekki að vera vísindamaður eða fara í einhverjar risastórar skemmtiferðaskipaferðir. Farðu bara með flugi og bara skoðaðu Nuuk. Það er eins auðvelt eins og að skreppa til Kaupmannahafnar,” segir Linda. Linda kallaði fyrirlesturinn sinn „Safnarúntur á Grænlandi“ en hún hefur verið töluvert í Grænlandi síðustu ár og þá aðallega, sem sjálfboðaliði á söfnum.Magnús Hlynur Hreiðarsson En hvað finnst Lindu um hugmynd Bandaríkjaforseta að kaupa Grænland? „Ég er svo móðguð fyrir þeirra hönd og enn þá bara sármóðguð og það líka að hugsa sér að geta keypt land á meðan grænlenska þjóðin á í rauninni öll saman, þau eiga landið sitt saman, þau eiga allar veiðilendurnar, fjöllin og hafið.” Linda sagði frá því í fyrirlestrinum að það væru engin mótorhjól í Grænlandi. „Nei, mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi. Það var smá forræðishyggja svo að fólk færi ekki að drepa sig á þessum tólum vegna þess að þú kemst ekkert á milli neinna staða hvort sem er þannig að mótorhjólin voru bara leiktæki. Þú verður að láta þér duga snjósleðana,” sagði Linda.
Árborg Grænland Bifhjól Mest lesið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Qualley og Antonoff í sundur Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Fleiri fréttir Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Sjá meira