Þvertaka fyrir að þjálfarinn stökkvi frá borði rétt fyrir HM Sindri Sverrisson skrifar 6. febrúar 2026 16:02 Walid Regragui hefur náð eftirtektarverðum árangri með Marokkó. Getty/Torbjorn Tande Óljósar fréttir hafa borist af því að þjálfari Marokkó, Walid Regragui, hafi sagt af sér aðeins fjórum mánuðum áður en liðið hefur keppni á HM í fótbolta.
Orðrómurinn náði nægu flugi, meðal annars með frétt Foot Mercato um að Regragui væri hættur, að knattspyrnusamband Marokkó fann sig knúið til að senda frá sér yfirlýsingu. Þar segir að sambandið „hafni alfarið því sem haldið hafi verið fram í ákveðnum miðlum“, um afsögn landsliðsþjálfarans. Segja má að Regragui hafi aðeins verið einni vítaspyrnu frá því að gera Marokkó að Afríkumeistara í síðasta mánuði. Liðið tapaði þá í dramatískum úrslitaleik gegn Senegal, eftir að Brahim Diaz klúðraði vítaspyrnu eftirminnilega í lok venjulegs leiktíma. Þar að auki stýrði hann Marokkó í undanúrslit á síðasta heimsmeistaramóti sem er besti árangur í sögu þjóðarinnar. Afsögn Regragui kæmi því verulega á óvart og miðað við yfirlýsingu marokkóska sambandsins verður hann áfram við stjórnvölinn fram yfir HM í sumar. Marokkó byrjar HM á leik við Brasilíu 13. júní en er einnig í riðli með Skotlandi og Haítí.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Sjá meira