Þegar viðvaranir eru hunsaðar Þórdís Lóa Þórhallsdóttir skrifar 6. febrúar 2026 07:33 Reykjavík stefnir í byggingarfélag þrátt fyrir rauð ljós Í janúar sl. varaði Viðreisn í Reykjavík við því að Reykjavíkurborg væri á leið inn á byggingarmarkaðinn með stofnun byggingarfélags. Þá lá fyrir í borgarstjórn tillaga meirihlutans um að stefna að stofnun byggingarfélags Reykjavíkur. Nú liggja hins vegar fyrir tvö skjöl sem lögð voru fyrir borgarráð í gær, fimmtudaginn 5. febrúar, sem breyta stöðunni í öllum grundvallaratriðum. Fyrir liggur nú ítarlegt áhættumat og skýr umsögn borgarlögmanns. Þar eru send skýr skilaboð: Þessi leið er afar varasöm og áhættumikil. Áhættan er raunveruleg og skjalfest Áhættumat borgarinnar dregur ekki dul á stöðuna. Þar kemur skýrt fram að mesta áhættan liggur í innleiðingu innri umbóta hjá Félagsbústöðum og í breytingastjórnun. Ef aðeins hluti aðgerðanna tekst, sem áhættumatið telur raunhæft, nær félagið hvorki sjálfbærni né þeim uppbyggingarmarkmiðum sem lagt er upp með. Það sem vekur sérstaka athygli er að stofnun byggingarfélags er kynnt sem lausn á þessari áhættu, þrátt fyrir að áhættumatið bendi ekki á hana sem lykilforsendu árangurs, heldur þvert á móti sem viðbótaráhættu. Borgarlögmaður flaggar rauðu Umsögn borgarlögmanns er ekki síður afgerandi. Þar er varað sérstaklega við því að borgin færi sig inn á samkeppnismarkað með uppbyggingu og sölu íbúða á almennum markaði. Slík starfsemi brýtur í bága við sveitarstjórnarlög og reglur um ríkisaðstoð. Með öðrum orðum, lagalega flóknasti og viðkvæmasti hlutinn er einmitt sá sem á að draga úr fjárhagslegri áhættu. Það eitt og sér ætti að kalla á að meirihlutinn staldri við, en svo virðist ekki vera. Rautt flagg og áhættumat eru hunsuð. Meirihlutinn verður að bera pólitíska ábyrgð Það verður að draga fram skýra pólitíska ábyrgð meirihlutans. Þegar bæði áhættumat og umsögn borgarlögmanns liggja fyrir er ekki lengur hægt að tala um þetta sem tilraun eða könnunarvinnu án afleiðinga. Á þessum tímapunkti er meirihlutinn tilbúinn til að taka meðvitaða ákvörðun um að ganga áfram þrátt fyrir viðvaranir. Ef forsendur bresta, ef innri umbætur ná ekki fram að ganga eða ef lagaleg óvissa raungerist, þá er það ekki „ófyrirséð atvik“. Þá er um að ræða afleiðingar pólitískrar ákvörðunar sem tekin var í fullri vitund um áhættuna. Slík ábyrgð verður ekki færð yfir á Félagsbústaði, stjórnendur eða nýtt dótturfélag. Hún liggur hjá meirihlutanum sem valdi leiðina. Reynslan sýnir að þegar opinber verkefni af þessari stærðargráðu fara úrskeiðis er tilhneiging til að bregðast við með auknum framlögum eða enn frekari skuldbindingum. Þess vegna skiptir máli að staldra við áður en nýtt byggingarfélag er stofnað. Pólitísk ábyrgð snýst ekki um að vona að hlutirnir gangi upp heldur að sýna ábyrgð, staldra við og finna betri leiðir með minni áhættu og minni lagalegri óvissu. Tökum ekki áhættu á kostnað íbúa Þegar áhættumat og lögfræðileg viðvörun eru lögð saman blasir einföld staðreynd við. Ef þetta mistekst lendir kostnaðurinn ekki hjá óskilgreindu félagi, heldur hjá borgarbúum í borgarsjóði. Með stofnun byggingarfélags eru teknar langtímaskuldbindingar sem erfitt verður að vinda ofan af jafnvel þótt forsendur bresti. Sjálfbærni krefst aga, ekki nýrra félaga Viðreisn styður markmiðið um sjálfbæra félagsbústaði og aukið framboð hagkvæmra íbúða. En góð markmið réttlæta ekki áhættusamar leiðir. Áður en lengra er haldið verður að sýna fram á að innri umbætur virki í reynd, að áhættan sé viðráðanleg og að lagaleg staða sé hafin yfir allan vafa. Viðreisn í Reykjavík gerir alvarlegar athugasemdir við að meirihlutinn ætli að fara í áhættusaman leiðangur sem búið er að vara við með skjalfestum gögnum, allt á kostnað borgarbúa. Höfundur er oddviti Viðreisnar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórdís Lóa Þórhallsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Amma og afi, plís ekki kjósa gegn okkur Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Fullveldi er ekki stofustáss María Kristín Gylfadóttir skrifar Skoðun Þarf kerfi sem er sjálft búið að greina skort á samfellu rof á samfellu meðan verið er að laga skort á samfellu? Spyr amma Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Á matur að vera ódýr? Sæmundur Jón Jónsson skrifar Skoðun Baráttan um Ísland Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Verum ekki lítil - Ákall til ungu kynslóðarinnar Kristrún Ágústsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Þarf kerfi sem er sjálft búið að greina skort á samfellu rof á samfellu meðan verið er að laga skort á samfellu? Spyr amma Kristín Ólafsdóttir skrifar