Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 8. febrúar 2026 14:02 Sigurbjörg Sæunn segir ekki koma til greina að lyfjafræðingar verði látnir bera persónulega ábyrgð með þeim hætti sem lagt er til og segir að ef ekki rætist úr verði lyfjafræðingar einfaldlega að neita að afgreiða sum lyf. Vísir/Vihelm Lyfjafræðingar eru margir hverjir afar ósáttir við breytingar sem til stendur að gera á lögum um sjúkratryggingar en frumvarp þess efnis er nú í meðförum þingsins. Sérstaklega eru gerðar athugasemdir við 24. grein frumvarpsins sem þeir segja að feli í sér verulega og óásættanlega breytingu á ábyrgð lyfjafræðinga.
Lyfjafræðingafélag Íslands sendi á dögunum áskorun til félaga sinna þar sem þeir eru hvattir til að búa sig undir aðgerðir verði breytingarnar samþykktar á Alþingi óbreyttar. Breytingunum virðist vera ætlað að sporna við lyfjamisnotkun og svartamarkaðsbraski en í greininni umdeildu segir: „Leiði brot gegn reglum eða fyrirmælum um þjónustu eða afhendingu lyfja eða annarra vara til ofgreiðslna sjúkratryggingastofnunarinnar er stofnuninni heimilt að krefjast endurgreiðslu úr hendi viðkomandi heilbrigðisstarfsmanns eða þjónustuveitanda“ Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir formaður Lyfjafræðingafélags Íslands segir að Lyfjafræðingar geti ekki borið persónulega ábyrgð á kerfi sem þeir hafa ekki stjórn á. „Það er hægt að stunda svokallað læknaráp, þar sem sjúklingar rápa á milli lækna og fá óteljandi lyfjaávísanir. Læknarnir eiga að sjá þetta en mér finnst og fremst að lyfjafræðingar þurfi að hafa þessa yfirsýn þannig að þegar viðkomandi kemur í apótek þá geti þeir séð heildarmeðferðina og hvort viðkomandi hafi verið að leysa ávísunina út skömmu áður í öðru apóteki," segir Sigurbjörg. Þessi tæki standi lyfjafræðingum ekki til boða og á meðan svo er, segir Sigurbjörg, kemur ekki til greina að gera lyfjafræðinga persónulega ábyrga eins og gert er með breytingunum á frumvarpinu nú. Og hún boðar aðgerðir ef frumvarpið fer í gegn óbreytt: „Þá verðum við bara að fara að hætta að afgreiða þessi lyf sem er verið að selja á svörtum markaði.“ Sigurbjörg segir að allskyns lyf gangi kaupum og sölum á svörtum markaði hér á landi, þar sé meðal annars um að ræða þyngdarstjórnunarlyf, ADHD-lyf, sterk verkjalyf og svefnlyf svo eitthvað sé nefnt. „Ef markmiðið er hreinlega að fækka lyfjafræðingum í landinu þá er þetta mjög góð leið,“ segir Sigurbjörg og bætir við: „En ef markmiðið er að sporna gegn misnotkun lyfja þá eru til margar betri leiðir sem við erum tilbúin til að vinna að í samvinnu við ráðuneytið og embætti Landlæknis,“ segir Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir formaður Lyfjafræðingafélags Íslands. Frumvarpsdrögin umdeildu má sjá hér.
Lyf Sjúkratryggingar Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent Fleiri fréttir Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Sjá meira