Skilur ekki af hverju Guéhi má ekki spila úrslitaleikinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. febrúar 2026 11:01 Pep Guardiola, knattspyrnurstjóri Manchester City, ræðir við Marc Guehi í fyrsta leik hans með félaginu. Getty/Ed Sykes Manchester City mun óska eftir sérstöku leyfi frá ensku deildinni til að Marc Guéhi fái að spila í úrslitaleik Carabao-bikarsins en Pep Guardiola talaði um þetta eftir sigurinn á Newcastle í undanúrslitunum í gær.
City tryggði sér sæti gegn Arsenal á Wembley í mars með 5-1 samanlögðum sigri á Newcastle í tveimur leikjum. Guéhi var ekki löglegur til að spila í gær og eftir leikinn sagði Guardiola að það væri „erfitt að skilja“ regluna sem mun einnig koma í veg fyrir að þessi 25 ára leikmaður spili í úrslitaleiknum þar sem hann var ekki skráður fyrir fyrri undanúrslitaleikinn. Antoine Semenyo, sem einnig var keyptur í janúar, verður löglegur þar sem hann kom frá Bournemouth fyrir fyrri undanúrslitaleikinn á St James' Park þann 13. janúar. Vonandi sendum við bréf „Vonandi getum við sannfært Carabao-bikarinn (EFL) um að Marc fái að spila í úrslitaleiknum,“ sagði Guardiola. „Ég skil ekki af hverju hann getur ekki spilað í úrslitaleiknum. Vonandi sendum við bréf,“ sagði Guardiola. „Þú kaupir leikmann fyrir mikla peninga og hann getur ekki spilað vegna reglu sem ég skil ekki. Vonandi geta þeir breytt því. Það er erfitt að skilja þetta,“ sagði Guardiola. Á meðan Semenyo gat spilað í báðum leikjunum gegn Newcastle var Guéhi ólöglegur í seinni leiknum þrátt fyrir að hafa þegar spilað tvo leiki í ensku úrvalsdeildinni fyrir nýja félagið sitt eftir félagaskiptin frá Crystal Palace. Af hverju ekki? Guardiola viðurkenndi að hann byndi ekki miklar vonir við að enski varnarmaðurinn fengi að spila gegn Arsenal þann 22. mars, en hann hefur beðið stjórnendur City um að reyna. „Ég sagði við félagið að þeir yrðu að spyrja, hiklaust,“ sagði hann. „Marc getur ekki spilað seinni leikinn því hann spilaði ekki þann fyrri. Og Antoine kom fyrir þann fyrri svo hann gat spilað. Og nú er það úrslitaleikurinn. Af hverju ætti hann ekki að spila? Af hverju ekki? Við borgum launin hans, hann er okkar leikmaður,“ sagði Guardiola.
Enski boltinn Manchester City Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Arbeloa í brasi Enski boltinn Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira