Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Árni Sæberg skrifar 4. febrúar 2026 08:58 Svona líta verslanir SPAR út. Drangar Drangar, móðurfélag Samkaupa, hafa skrifað undir samning við alþjóðlegu verslunarkeðjuna SPAR International um notkun vörumerkisins hérlendis. Markmið samningsins er að í lok árs 2027 muni verslanir undir merkjum 10–11, Krambúðar og Kjörbúðar bera alþjóðlegt vörumerki SPAR. Eftir innleiðinguna mun Samkaup selja matvöru undir vörumerkjunum Prís, Nettó og SPAR.
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að verslanir SPAR bjóði upp á fjölbreytt úrval matvöru, tilbúinna rétta og annarrar dagvöru frá birgjum um allan heim. Gert sé ráð fyrir lægra vöruverði í verslunum sem reknar verða undir vörumerki SPAR, meðal annars vegna aðgengis að alþjóðlegum samningum SPAR við stærstu birgja heims. Með þessum samningi fái Samkaup aðgang að þekkingu og reynslu SPAR International, sem reki eitt stærsta smásölunet í heimi. SPAR hafi verið stofnað í Hollandi árið 1932 og reki í í dag verslunarnet með yfir 13.800 verslanir í 50 löndum. Starfsemi SPAR sé víða innan Evrópusambandsins eða í 18 af 27 aðildarríkjum og þjónusti um 14,7 milljónir neytenda daglega. Samkaup hf. er verslunarfyrirtæki á dagvörumarkaði sem rekur 60 verslanir um allt land. Samkaup er dótturfélag Dranga hf. „Samningurinn við SPAR opnar Samkaupum fjölmörg tækifæri um betra verð, þjónustu og upplifun í verslunum okkar hér á landi. Starfsfólk Samkaupa sem býr yfir áratuga þekkingu á íslenskum matvörumarkaði fær tækifæri til að kynna sér aðferðir og leiðir sem skilað hafa árangri á alþjóðamörkuðum og aðlaga þær að aðstæðum hér heima. Þannig færum við heimsverslun heim í hérað. Samstarf við alþjóðlegan verslunarrisa styður okkar vegferð og er jafnframt mikilvægur áfangi í vexti og viðgangi Dranga sem er nýstofnað móðurfélag framsækinna rekstrarfélaga á innlendum neytendavörumarkaði,“ er haft eftir Auði Daníelsdóttur, forstjóra Dranga. „Við erum stolt af því að opna SPAR á Íslandi í samstarfi við Dranga sem munu nýta alþjóðlega sérþekkingu SPAR og saman munum við aðlaga hið rótgróna og sannreynda alþjóðlega vöruframboð SPAR að þörfum heimamarkaðarins. Með því að sameina þekkingu Dranga á markaðinum og viðurkenndan árangur SPAR endurspeglum við leiðarljós SPAR um að saman séum við betri. Þannig knýjum við áfram sjálfbæran vöxt með sameiginlegan árangur að leiðarljósi,“ er haft eftir Tobias Wasmuht, forstjóri SPAR International.
Verslun Matvöruverslun Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Verði að hætta að benda hver á annan Viðskipti Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira