Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. febrúar 2026 09:00 Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, benti á staðreyndir þegar kemur að eyðslu félaga í ensku úrvalsdeildinni undanfarin ár. Getty/Martin Rickett Pep Guardiola knattspyrnustjóri Manchester City segir að pressan sé meiri á sex af keppinautum Manchester City í ensku úrvalsdeildinni þegar kemur að því að vinna fleiri titla þar sem þeir hafa eytt meira en hans félag undanfarin fimm ár.
Guardiola sagði í gríni að hann væri „fúll“ vegna þess að félagið hans eyddi ekki meiru í janúarglugganum eftir að hafa upplýst að City er í sjöunda sæti yfir nettóeyðslu frá sumrinu 2021. Manchester United, Arsenal, Chelsea, Tottenham og Newcastle hafa eytt meira nettó undanfarin fimm ár og stjóri City gaf í skyn að gagnrýna ætti þessi félög fyrir að vinna ekki fleiri titla. Ég er svolítið fúll út í þá Aðspurður um að City hafi fengið bæði Antoine Semenyo og Marc Guéhi í janúar sagði Guardiola: „Já, virkilega gott. Ég er svolítið dapur og í uppnámi því í nettóeyðslu síðustu fimm ára erum við í sjöunda sæti í ensku úrvalsdeildinni,“ sagði Guardiola. „Ég vil vera í fyrsta sæti. Ég skil ekki af hverju félagið eyðir ekki meiri peningum. Ég er svolítið fúll út í þá,“ sagði Guardiola. „En eins og við unnum áður vegna þess að við eyddum miklu, þá verða núna sex lið að vinna ensku úrvalsdeildina, Meistaradeildina og ensku bikarkeppnina því þau hafa eytt meira undanfarin fimm ár,“ sagði Guardiola. Þetta eru staðreyndir „Þetta eru staðreyndir. Þetta er ekki skoðun. Þú getur haft skoðun, eins og þú segir að við spilum vel eða illa gegn Spurs – við getum verið sammála eða ósammála. En þetta eru staðreyndir. Gangi liðunum sex sem eru fyrir ofan okkur í nettóeyðslu síðustu fimm ára vel. Áfram með það. Ég bíð. Þetta er fín tilvitnun, er það ekki?,“ sagði Guardiola. Guardiola á möguleika á að komast í sinn fimmta úrslitaleik í deildabikarnum þegar City mætir Newcastle í seinni undanúrslitaleiknum á Etihad-leikvanginum í kvöld. Hann verður án Guehi, sem er ekki löglegur, á meðan verið er að meta stöðuna á Rayan Cherki eftir að hann fékk högg í 2-2 jafnteflinu gegn Tottenham á sunnudag. Rúben Dias sneri aftur á æfingu á sunnudag og Guardiola verður að ákveða hvort hann eigi að hætta á að tefla portúgalska landsliðsmanninum fram. Möguleiki á fimmta úrslitaleiknum á tíu árum „Við eigum möguleika á að komast í okkar fimmta úrslitaleik á tíu árum í deildabikarnum,“ sagði Guardiola. „Auðvitað myndi ég frekar vilja byrja með 2-0 forystu eftir góð úrslit [í fyrri leiknum], en ég veit hversu oft við spilum gegn Newcastle og metnaðinn sem þeir hafa sem Meistaradeildarlið. Við verðum að vera undirbúnir og sjá hvernig leikmennirnir jafna sig eftir erfiðan leik gegn Spurs og spila okkar leik með okkar fólki og okkar stuðningsmönnum og reyna að komast á Wembley í mars,“ sagði Guardiola.
Enski boltinn Manchester City Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Arbeloa í brasi Enski boltinn Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira