Alltaf í (geð)ræktinni? Svava Arnardóttir skrifar 3. febrúar 2026 11:01 Á þessum árstíma eru mörg okkar með háfleyg markmið um ástundun í ræktinni. Við ætlum að verða sterkari, lyfta meiru, hlaupa lengra, sigrast á jógastöðunum og svo mætti lengi telja. Almennt erum við meðvituð um mikilvægi þess að hreyfa okkur reglulega og sinna líkamlegri heilsu ævina alla. Ávinningurinn er ótvíræður. En settum við okkur einhver markmið sem snúa að því að stunda geðrækt á nýju ári? Hvað getum við gert til að hlúa að geðheilsu okkar? Landssamtökin Geðhjálp standa fyrir vitundarvakningunni G-vítamín þar sem boðið er upp á einfaldar tillögur að atriðum til að bæta andlega líðan. Á hverjum degi er hægt að nálgast góð ráð á Facebook og Instagramsíðum Geðhjálpar, auk þess sem hægt er að sækja skjáhvílur og fá G-vítamín sent í tölvupósti á hverjum degi með því að skrá sig til leiks á gvitamin.is. Atriði eins og að þakka fyrir daginn að kvöldi, prófum eitthvað nýtt og lítum á mistök okkar sem reynslu, geta reynst ákveðið mótvægi við svartnættinu sem ríkir á þessum árstíma og öllu því sem mögulega bjátar á. Með því að tileinka okkur reglubundna geðrækt getum við náð auknu jafnvægi og bættri líðan dags daglega, auk þess sem hún getur verið ákveðið haldreipi í lífsins ólgusjó. Ég heyrði í nokkrum í kringum mig og bað þau um að deila þeirra G-vítamínum, hvað þau gera til að hlúa að eigin geðheilsu. Dæmin eru til þess fallin að gefa okkur hugmyndir og innblástur. Það getur verið breytilegt með tímanum og aðstæðum en það er alltaf eitthvað sem sameinar hreyfingu og samveru. Það sem hleður mín batterí er að fara út úr húsi, hreyfa mig eitthvað og helst í góðum félagsskap. Það getur til dæmis verið að fara í smá göngutúr með vinkonu minni, fara í sund með fjölskyldunni, fara á gönguskíði með manninum mínum. Allt eftir því hvernig veður er og aðstæður hverju sinni. - Soffía Erla Einarsdóttir Mér finnst rosa gott að ganga fjöll til þess að hreinsa hugann smá og detta í smá núvitund, en það sem ég geri kannski einna helst er að hitta vini og eyða tíma með þeim, það hleður mín batterí langmest og ég finn hvað það er nauðsynlegt fyrir mína geðheilsu. - Þórður Páll Jónínuson Þórður og Soffía lögðu áherslu á útiveru, hreyfingu og tengsl við þau sem standa þeim næst. Það getur skipt sköpum að komast aðeins í ferskt loft, hvað þá að ná dagsbirtustund á meðan hún varir. Útiveran getur sameinað bæði geðrækt sem og líkamsrækt fyrir þau sem það kjósa, og þannig slegið tvær flugur í einu höggi! Samskipti við nákomna eru ómetanleg. Þau eru liður í því að rækta tengslin, finna að við erum ekki ein, deila líðandi stund með öðrum, tjá tilfinningar og atburði. Við þurfum öll á því að halda. Raunhæft skipulag hversdagsleikans minnkar stress umtalsvert. Gæti að svefni og passa að hvílast reglulega. Þegar ég finn að ég ræð ekki við aðstæður þá hef ég leitað til sálfræðings og það hefur aldeilis munað um það, en ég passa að sálfræðingurinn beiti raunprófuðum aðferðum og sé talinn góður og áhrifaríkur í sinni vinnu með skjólstæðingum. - Zuilma Gabríela Sigurðardóttir Mín vítamín eru að læra og lesa eitthvað nýtt, helst daglega. Ljóð eru einn minn besti heilsubrunnur. Og að grúska í gömlum fræðum yngir mig! Því heilann þarf stöðugt að næra, þá er geðheilsan góð. - Dagbjört Höskuldsdóttir Zuilma deildi hvernig hún hlúir að undirstöðuatriðum góðrar geðheilsu og Dagbjört ræktaði andann með því að vera sífellt að læra. Góð andleg líðan byggir meðal annars á þrautseigju, bjargráðum, streitustjórnun, núvitund og tilfinningastjórnun. Við þurfum líka að finna að það sé tilgangur með þessari tilvist, að við höfum margt fram að færa og skiptum máli. Einnig hjálpar að sýna sér mildi og reyna að finna fegurðina í hversdeginum. Það getur verið gefandi að skora á sig, stíga reglubundið út fyrir þægindahringinn og tileinka sér nýja þekkingu. Í raun: leitast við að lifa lífi í samræmi við gildin okkar. Aðstæður okkar og áhugasvið eru mismunandi. Ekkert eitt ráð eða aðferð hentar öllum. Ég vona að umfjöllunin um G-vítamín verði til þess að við séum meðvitaðri um margar leiðir til að hlúa að geðheilsunni og finnum okkar útfærslur í þeim efnum. Það er aldrei að vita nema að næstu nýársheit muni innihalda markmið sem snúa að andlegri líðan okkar. Sjáumst við svo ekki bara - í geðræktinni? Höfundur er formaður Geðhjálpar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Svava Arnardóttir Mest lesið Mannréttindi í Reykjavík í hættu Eldur Smári Kristinsson Skoðun Viðreisn gengur í verkin Róbert Ragnarsson Skoðun Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon Skoðun Lifandi hvalir skapa líka verðmæti Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Nei Íslandsbanki ég er ekki 6 ára Kristján Logason Skoðun Líffræðileg fjölbreytni á undanþágu? Maren Davíðsdóttir Skoðun Heilbrigðisráðherra slær eigið heimsmet Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Aldrei fleiri Ljón á Íslandi Selma Rut Þorsteinsdóttir Skoðun Það sem kynslóðir byggðu – og okkar ábyrgð að varðveita Sveinn Kristjánsson Skoðun Hvar mega okkar minnstu bræður borða? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Dánaraðstoð fyrir deyjandi fólk: Á ótti við framtíðina að ráða úrslitum? Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Það sem kynslóðir byggðu – og okkar ábyrgð að varðveita Sveinn Kristjánsson skrifar Skoðun Handan óttans: Hvers konar Ísland viljum við byggja? Bjarndís Helena Mitchell skrifar Skoðun Lifandi hvalir skapa líka verðmæti Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon skrifar Skoðun Hangið frammi á gangi í von um fréttir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Viðreisn gengur í verkin Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Mannréttindi í Reykjavík í hættu Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Hvernig líður fjölskyldunni? Auður Axelsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðisráðherra slær eigið heimsmet Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Borgarlínan og Línuborg Soria Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun Hvaða börn koma fyrst? Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Lífeyririnn okkar má ekki týnast Sandra B. Franks skrifar Skoðun Aldrei fleiri Ljón á Íslandi Selma Rut Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Mikilvægur áfangi fyrir eldri ökumenn Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Nei Íslandsbanki ég er ekki 6 ára Kristján Logason skrifar Skoðun Er gervigreind örlög eða stefna? Hanna Kristín Skaftadóttir skrifar Skoðun Menningarsjá og hlutverk hennar Anna Hildur Hildibrandsdóttir ,Erna Kaaber skrifar Skoðun Líffræðileg fjölbreytni á undanþágu? Maren Davíðsdóttir skrifar Skoðun Minna fólk – aðrar þarfir Bozena Raczkowska skrifar Skoðun Fullveldi og almannaheill Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Börnin fyrst, kerfið svo Inga Sæland skrifar Skoðun Hvar mega okkar minnstu bræður borða? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Núverandi heilbrigðiskerfi er ekki sjálfbært – aukið einkaframtak er hluti af lausninni Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Valdatafl og viðskiptapólitík í lagareldi Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sálin tekin úr skólunum Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Matvælaverð, tollar og heimildavinna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Stefna og innleiðing hennar á óvissutímum Jóhanna Gunnþóra Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hinar myrku hliðar deilds fullveldis: Sýndaráhrif og uppgjöf smáríkis Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Stækkar skrifræðið við inngöngu í ESB? Tölurnar segja annað Halldór Jörgen Olesen skrifar Sjá meira
Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon Skoðun
Skoðun Dánaraðstoð fyrir deyjandi fólk: Á ótti við framtíðina að ráða úrslitum? Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon skrifar
Skoðun Núverandi heilbrigðiskerfi er ekki sjálfbært – aukið einkaframtak er hluti af lausninni Sævar Þór Jónsson skrifar
Skoðun Hinar myrku hliðar deilds fullveldis: Sýndaráhrif og uppgjöf smáríkis Eggert Sigurbergsson skrifar
Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon Skoðun