Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. febrúar 2026 08:03 Rannsóknir sýna að krakkar yngri en tólf ára ættu alls ekki að skalla boltann. Getty/ Jörg Schüler Er hættulegt fyrir börn að skalla boltann? Fræðimenn hafa komist að því og vilja fjarlægja þann þátt fótboltans úr æfingum og leikjum ungs fótboltafólks.
Samtök breskra knattspyrnumanna munu í dag tilkynna um fyrstu yfirgripsmiklu verklagsreglurnar til að koma í veg fyrir heilahrörnunarsjúkdóminn CTE. Þar með er aukin áhersla lögð á að koma í veg fyrir heilahristing og þann skaða sem getur hlotist af minna kröftugum höggum við að skalla fótbolta. Ekki skalla boltann oftar en tíu sinnum í viku Í leiðbeiningum frá Samtökum atvinnuknattspyrnumanna (PFA), sem eru fulltrúar núverandi og fyrrverandi leikmanna í ensku úrvalsdeildinni, ensku ofurdeild kvenna og ensku deildakeppninni, er mælt með því að atvinnumenn skalli boltann ekki oftar en tíu sinnum í viku, þar með talið á æfingum. There are more calls to limit heading in football.A coroner ruled the brain disease which killed Leeds and Manchester United defender Gordon McQueen was “likely” caused by repeated headers.With an under-11s heading ban coming in, and limits on heading in training in… pic.twitter.com/FTNGp2gZbn— BBC Radio 5 Live (@bbc5live) January 30, 2026 Börn yngri en tólf ára ættu alls ekki að skalla boltann, að sögn PFA, en þetta er hluti af verklagsreglum til að koma í veg fyrir langvinnan áverkaheilasjúkdóm (CTE) og er ætlað að fækka höfuðhöggum yfir ævi leikmanns. Það er hægt að koma í veg fyrir CTE „Það er hægt að koma í veg fyrir CTE. Punktur,“ sagði dr. Adam White, forstöðumaður heilaheilbrigðis hjá PFA, á mánudag á fyrstu alþjóðlegu CTE-ráðstefnunni sem haldin var í San Francisco í kringum Super Bowl-leikinn sem fer fram á sunnudag. „Meginreglurnar um færri skalla, minni kraft og sjaldnar og seinna á ævinni skipta máli,“ sagði White við The Associated Press. „Þetta gæti átt við um hvaða íþrótt sem er og er besta von okkar til að koma í veg fyrir að núverandi og framtíðar leikmenn hljóti sömu örlög og fyrri kynslóðir.“ 3,5 sinnum meiri hætta á að fá heilabilun Meðal nýlegra áhyggjuefna eru regluleg höfuðhögg sem varnarmenn í amerískum fótbolta verða fyrir og þau sem knattspyrnumenn fá við að skalla boltann. Rannsóknir sem fjármagnaðar voru af samtökunum og enska knattspyrnusambandinu sýndu að skoskir atvinnumenn eru í 3,5 sinnum meiri hættu á að fá heilabilun en almenningur; rannsóknir á heilum breskra knattspyrnumanna sýndu að meirihluti þeirra var með CTE, þar á meðal Jeff Astle, Gordon McQueen og Chris Nicholl. „Með því sem við vitum í dag um sjúkdóminn væri það vanræksla gagnvart leikmönnum okkar að gera ekkert,“ sagði White í yfirlýsingu. Vísindin og lausnirnar skýrar „Vísindin og lausnirnar eru skýrar, það þarf bara vilja frá íþróttasamtökum til að setja langtímaheilsu íþróttamanna í forgang og ég er ánægður með að okkur hafi tekist það í Englandi. Ég hvet allar íþróttir til að leggja jafn mikið, ef ekki meira, kapp á verklagsreglur til að koma í veg fyrir CTE og þær hafa gert með verklagsreglur um heilahristing,“ sagði White. NEWS: Dr. Adam White, @PFA director of brain health, announces the players’ union is adopting an official CTE Prevention Protocol.The top men's & women’s divisions in English football are the world’s first pro leagues to formally adopt a framework aimed at reducing CTE risk. pic.twitter.com/M3XzYlIFkP— Concussion & CTE Foundation (@ConcussionCTEfn) February 2, 2026
Enski boltinn Börn og uppeldi Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Arbeloa í brasi Enski boltinn Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira