Handbolti

Segja að bestu árin hjá þessum hóp séu fram undan

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ísland er kannski ekki með mjög ungt lið en flestir lykilmenn íslenska landsliðsins eiga engu að síður mörg mót eftir í „præminu“.
Ísland er kannski ekki með mjög ungt lið en flestir lykilmenn íslenska landsliðsins eiga engu að síður mörg mót eftir í „præminu“. Vísir/Vilhelm

Framtíð íslenska karlalandsliðsins í handbolta var til umræðu í Besta sætinu eftir að íslenska liðið náði fjórða sætinu á Evrópumótinu í ár. Þar eru sérfræðingarnir sammála um að liðið sé á góðum aldri til að vinna enn frekari afrek á næstu árum.

Einar Jónsson og Rúnar Kárason mættu til Stefáns Árna Pálssonar og gerðu upp tapið gegn Króatíu í leiknum um bronsverðlaunin á EM. Strákarnir okkar gengu hnýptir og svekktir af velli en sú tilfinning ætti að vera eldsneyti í tankinn til að gera enn meira á næstu stórmótum. Næst er heimsmeistaramótið eftir ár og svo ár með bæði Evrópumóti og Ólympíuleikum. Þrjú stórmót á næstu tveimur og hálfu ári.

„Við vorum aðeins að ræða aldurssamsetninguna á þessu liði. Bjarki er 36 ára á þessu ári og Björgvin er náttúrulega bara markmaður og hann getur verið í fimm ár í viðbót. Annars eru þetta bara strákar sem eru að fara að vera næstu fjögur, fimm árin,“ sagði Stefán Árni Pálsson.

Haukur loksins á svona góðan stað

Rúnar Kárason horfir sérstaklega til Hauks Þrastarsonar sem að hans mati er nú kominn á þann stað sem getur nýst honum og landsliðinu vel.

„Loksins er Haukur bara kominn á svona góðan stað á sínum ferli. Það eru búin að vera bara meiðsli og ekki kjöraðstæður í gangi hjá honum. Núna er hann kominn í þýsku Bundesliguna og að spila vel. Ég gæti bara trúað því að Haukur sé að fara að verða betri upp úr þessu og verða leikmaðurinn sem við erum búin að trúa á að hann geti orðið,“ sagði Rúnar.

Einar Jónsson segir íslenska landsliðið vera að stærstum hluta á frábærum stað til að geta byggt ofan á þetta mót á næstu árum.

Eiga ekkert eðlilega mikið eftir

„Varðandi bara liðið í heild sinni, á hvaða aldri það er, þá má ekki gleyma því að besta íslenska landsliðið nokkurn tímann, silfurliðið á Ólympíuleikunum, ef við bara segjum bara Óla Stef-liðið. Það er bara plús 30 ára á þeim tíma,“ sagði Einar en Ólafur Stefánsson var 35 ára sumarið sem liðið vann silfurverðlaunin í Peking.

„Hann verður svo bara besti handboltamaður í heimi næstu þrjú til fjögur árin þar á eftir. Þessir gaurar eiga ekkert eðlilega mikið eftir en jú, hin liðin eru heldur ekkert það gömul. Ef við horfum á þýska landsliðið þá eru þeir bara kornungir, þannig að það er bara barátta fram undan,“ sagði Einar.

Ekki bara kósí og huggulegt að vera í íslenska landsliðinu

„En ef við bara lítum algjörlega inn á við, ‚præmið' hjá þessu liði er ekkert endilega núna. Það er eftir einhver ár. Þetta á ekki að vera allt of gott fyrir þá heldur. Við þurfum að gera kröfu um það að einhverjir aðrir komi þarna inn og þrýsti á þá. Þetta á ekki að vera bara kósí og huggulegt að vera í íslenska landsliðinu. Það þarf að setja pressu á þá og láta þá finna fyrir því,“ sagði Einar.

Rúnari finnst þetta landslið vera nálægt því að vera á þeim stað í dag og gullkynslóðin var undir forystu Ólafs Stefánssonar.

Setti fram áskorun

„Þetta lið er bara komið á svipaðan stað ef við berum saman félagsliðin sem þeir eru að spila í. Vonandi halda menn bara dampi og við séum að fara að sjá bara bætingar,“ sagði Rúnar. Hann vill líka sjá leikmennina sem eru næstir inn taka á sig og stíga næstu skref.

„Bara gæjarnir sem langar að komast í landsliðið. Ég ætla nú kannski bara að fá að koma með smá áskorun. Að markmið landsins fari nú bara að rífa sig í gang og setja almennilega pressu á Bjögga [Björgvin Pál Gústavsson],“ sagði Rúnar.

Það má hlusta á meira um þetta og annað í kringum íslenska landsliðið í Besta sætinu þar sem menn voru að gera upp lokaleikinn á móti Króatíu sem og allt mótið. Allur þátturinn er aðgengilegur hér fyrir neðan sem og á öllum hlaðvarpssveitum.


Tengdar fréttir

„Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“

Sérfræðingar Besta sætisins segja ekkert annað koma til greina en að bjóða Snorra Steini Guðjónssyni, landsliðsþjálfara Íslands, nýjan samning fram yfir Ólympíuleikana 2028. 

Skýrsla Vals: Hafa það sem við höfum ekki

Danir í stúkunni kyrja „Ísland! Ísland!“ eftir hetjulega baráttu strákanna okkar á lokakaflanum. Það var of lítið, of seint, en þessir drengir hafa heldur betur náð mörgum á sitt band með besta árangri þessa hóps á stórmóti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×