Dróni hæfði farþegarútu fulla af námuverkamönnum Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 1. febrúar 2026 17:28 Rútuhræið er hér fyrir miðju myndar. Sjö særðust að auki. AP Rússneskur dróni hæfði farþegarútu sem flutti námuverkamenn úr vinnu til borgarinnar Dnípró í dag. Fimmtán hið minnsta eru sagðir hafa látist.
Sjö til viðbótar eru særðir eftir árásina en eldur kviknaði út frá sprengingunni sem viðbragðsaðilar slökktu síðan. Rútan tilheyrði DTEK, stærsta einkarekna námufélagi Úkraínu, en í yfirlýsingu frá félaginu eru Rússar sagðir stunda hryðjuverkastarfsemi með árásum sínum á námuinnviði í héraðinu. „Skotmark einnar árásanna var rúta fyrirtækisins sem flutti námuverkamenn heim á leið eftir vakt í Dnípropetrovsk-héraði,“ segir félagið í færslu á samfélagsmiðlum. Donald Trump Bandaríkjaforseti hafði fyrir fáeinum dögum tilkynnt að Rússar hefðu samþykkt að hætta loftárásum á höfuðborgina Kænugarð og fleiri stórborgir vegna þess óvenjulega mikla kulda sem hefur verið í Úkraínu þennan janúarmánuðinn. Þá stóð einnig til að erindrekar frá Rússlandi, Bandaríkjunum og Úkraínu funduðu í dag í Abú Dabí og héldu áfram að freista þess að binda enda á átökin en greint var fraá því í morgun að sendinefndirnar myndu hittast á miðvikudaginn í staðinn. Fyrr í dag greindi heilbrigðismálaráðuneyti Úkraínu frá því að rússneskir drónar hefðu hæft fæðingardeild sjúkrahúss í Sapórísjsju í suðurhluta landsins.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Mest lesið Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ Sjá meira