Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 30. janúar 2026 10:16 Ákærði færður upp í lögreglubíl eftir að hafa játað brot sín í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Vísir/Lýður Valberg Karlmaður sem sætir ákæru fyrir að hafa beitt dóttur sambýliskonu sinnar ítrekuðu kynferðislegu ofbeldi í Hafnarfirði hefur að mestu leyti játað brot sín fyrir dómi. Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson varahéraðssaksóknari í samtali við Vísi. Aðeins er óvíst um fjölda skipta sem brotin áttu sér stað.
Málið er eitt nokkurra umfangsmikilla kynferðisbrotamála gegn börnum sem komið hafa upp hér á landi undanfarna mánuði. Maðurinn á fimm ára fangelsisdóm á bakinu frá árinu 2023 fyrir ítrekuð og gróf kynferðisbrot gagnvart móður stúlkunnar. Hann sat hins vegar aldrei inni en konan baðst vægðar fyrir hönd mannsins sem hlaut að endingu skilorðsbundinn dóm. Ljóst er að maðurinn hefur nú rofið það skilorð, brotið ítrekað gegn ungri stúlku og á von á þungum dómi - óskilorðsbundnum í þetta skiptið. Karlmaðurinn hefur sætt gæsluvarðhaldi síðan málið kom upp í október. Þá var hann handtekinn vegna gruns um brot gegn stúlkunni á heimili þeirra í Hafnarfirði. Málið hefur verið þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur og fór fram fyrirtaka í málinu í gær. Þá mætti karlmaðurinn í fylgd lögreglumanna frá Hólmsheiði og kom fyrir dómara í málinu. Ágreiningur um fjölda skipta Karl Ingi Vilbergsson varahéraðssaksóknari segir að maðurinn hafi að mestu leyti játað þau brot sem hann er sakaður um. Það sé helst ágreiningur um fjölda skipta sem hann á að hafa brotið gegn stúlkunni sem standi út af. Hann reiknar þó með því að aðalmeðferð fari fram en hún verði þó mun minni umsvifs en annars hefði verið vegna játningarinnar. Talskona Stígamóta sagði í viðtali við Vísi á dögunum að dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur hefði með dómi sínum árið 2023, þegar maðurinn slapp við fangelsisvist, ákveðið að leggja hagsmuni barnanna til hliðar. Í að minnsta kosti eitt skipti beitti maðurinn móður stúlkunnar ofbeldi að henni nærstaddri. Ein af ástæðunum sem taldar voru upp í dómnum fyrir því að ákveðið var að skilorðsbinda dóm mannsins var sú að umrædd sambýliskona hafi beðist vægðar fyrir hann og sagt að það myndi raska högum hennar og barna ef manninum yrði gerð óskilorðsbundin refsing. Þá var talið honum til tekna að hafa játað brot sín skýlaust og væri fullur eftirsjár. Liðkað fyrir endurkomu mannsins á heimilið „Þarna er maður sem hefur sýnt af sér grófa ofbeldishegðun, að hluta til fyrir framan börn. Þarna hefur verið ákveðið að setja hagsmuni barnanna til hliðar. Það hefur verið ákveðið að verja ekki börnin af því að – eins og ég les þetta – þá hafa ofbeldisbrot verið framin fyrir framan börn. Það er samkvæmt skilgreiningu ofbeldi gegn börnum en samt er ákveðið að liðka fyrir því að maðurinn fari inn á heimilið aftur,“ sagði Drífa Snædal talskona Stígamóta. „Ef það er réttarfarið hjá okkur að brotaþolar geti óskað eftir því að þeir sem brjóta á þeim þurfi ekki að afplána þá erum við að útsetja brotaþola þessa lands fyrir hótunum, frekara ofbeldi, mútum og fleiru.“ Það að hann hafi ekki afplánað og verið sendur beint inn á heimilið aftur sýni mjög mikla vanþekkingu í kerfinu. „Vanþekkingu á því að brotaþolar geta verið fjárhagslega og tilfinningalega háðir þeim sem brjóta gegn þeim. Það getur verið hluti af þessu. Það er bara mjög margt í þessu máli sem hringir öllum bjöllum. Maður hefði haldið að kerfið væri komið lengra í vitneskju um afleiðingar ofbeldisbrota og stöðu brotaþola í samfélaginu en framkvæmd dómsins gefur til kynna.“
Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Dómsmál Hafnarfjörður Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Sjá meira