Tíu ákærðir fyrir að drepa friðaða úlfa Kjartan Kjartansson skrifar 30. janúar 2026 09:22 Annar úlfanna sem mennirnir tíu eru sakaðir um að hafa drepið ólöglega í Eiðaskógi í janúar árið 2025. Efnahags- og umhverfisglæpadeild norsku lögreglunnar Norsk yfirvöld hafa ákært tíu menn fyrir að drepa tvo úlfa í suðausturhluta landsins í fyrra. Úlfar eru taldir í bráðri útrýmingarhættu í Noregi og eru friðaðir. Nokkrir mannanna eru einnig ákærðir fyrir að reyna að drepa gaupu.
Mönnunum er gefið að sök að hafa drepið tvo úlfa, eitt karldýr og eitt kvendýr, í Eiðaskógi í Innlandet-fylki í suðausturhluta Noregs í janúar í fyrra. Veiðiþjófarnir eru sagðir hafa fylgst sameiginlega með úlfunum með myndavélum og staðsetningarbúnaði í rúma vikur áður en þeir felldu dýrin. Þeir eru ákærðir fyrir ólöglegar veiðar og krefst saksóknari í umhverfisglæpamálum þess að þeir verði sviptir veiðileyfi og hald lagt á vopn þeirra og búnað. Lögregla lagði hald á rúmlega hundrað vopn í eigu þeirra, að því er segir í frétt norska ríkisútvarpsins. Þrír mannanna eru einnig ákærðir fyrir að reyna að drepa gaupu, sömuleiðis í janúar í fyrra. Allir sakborningarnir eru sagðir heimamenn. „Ólöglegar veiðar eru alvarlegur umhverfisglæpur sem hefur áhrif á líffræðilegan fjölbreytileika og hann er enn alvarlegri þegar þær eru skipulagðar,“ segir Hans Tore Høviskeland, saksóknarinn í málinu. Allt að sex ára fangelsi liggur við því að veiða dýr í útrýmingarhættu samkvæmt norskum lögum.
Noregur Dýr Erlend sakamál Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Fleiri fréttir Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Sjá meira