Þrjár hlutu heiðursverðlaun Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 29. janúar 2026 19:05 Viðurkenningarhafarnir þrír. Silla Páls Mirror Rose Þrjár konur hlutu heiðursverðlaun á Viðurkenningarhátíð Félags kvenna í atvinnulífinu. Meðal verðlaunahafa er fyrrverandi borgarstjóri.
Eva María Þórarinsdóttir Lange, stofandi og framkvæmdastjóri Pink Iceland, Erna Magnúsdóttir, framkvæmdastýra Ljóssins, og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi borgarstjóri, utanríkisráðherra og forstjóri Lýðræðis- og mannréttindastofnunar ÖSE, voru heiðraðar. Viðurkenningahátíð FAK fór fram á miðvikudagskvöld á Hótel Reykjavík Grand. Fjöldi gesta úr atvinnulífi og samfélagi kom saman. Rúmlega eitt hundruð tilnefningar bárust í öllum flokkum verðlaunanna. Í dómnefndinni sátu Benedikt G'islason, Davíð Stefánsson, Isabel Alejandra Diaz, Rannveig Grétarsdóttir, Rán Flygenring og Þuríður Aradóttir Braun. Þrjár konur heiðraðar Eva María hlaut verðlaunin FKA Viðurkenning 2026 fyrir framúrskarandi frumkvöðlastarf í ferðaþjónustu og jafnréttismálum. „Undir hennar forystu hefur Pink Iceland haft veruleg áhrif á íslenskt atvinnulíf og ímyNd Íslands á alþjóðavettvangi. Eva maría hefur verið öflug talskona jafnréttis og fjölbreytileika og skapað nýtt rými fyrir konur og hinsegin einstaklinga í atvinnulífinu. Hún er skýr fyrirmynd í frumkvöðlastarfi, forystu og samfélagslegri ábyrgð,“ segir í fréttatilkynningu. Erna hlaut Hvatningarviðurkenningu FKA fyrir „athyglisvert frumkvæði og nýsköpun í þjónustu og samfélagslegum rekstri“. Hún er stofnandi og framkvæmdastjóri Ljóssins og að mati dómnefndar hefur byggt upp einstaka endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendur þeirra. Að lokum hlaut Ingibjörg Sólrún Þakkarviðurkenningu FKA. „Ingibjörg Sólrún hefur alla tíð verið óhrædd við að beita rödd sinni fyrir mannréttindum, jafnrétti og lýðræði og skapað rými fyrir konur til þátttöku, áhrifa og ábyrgðar. Með forystu sinni hefur hún rutt brautina fyrir heilar kynslóðir kvenna og lagt ómetanlegt ævistarf í þágu jafnréttis og samfélagslegrar ábyrgðar.“
Tímamót Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Fleiri fréttir Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Sjá meira