Rýr svör um stóru mistökin sem hefðu getað haft áhrif á Ísland Sindri Sverrisson skrifar 28. janúar 2026 15:01 Chema Rodriguez, þjálfari Ungverja, hefði alveg þegið vítakast í lokin gegn Svíum. Getty/Sanjin Strukic Þó að flestum sé ljóst að dómararnir gerðu stór mistök í lok leiks Ungverjalands og Svíþjóðar í gærkvöld eru svör EHF, Handknattleikssambands Evrópu, rýr varðandi málið.
Staðan var jöfn og Ungverjar með boltann þegar dæmdur var á þá ruðningur, nokkrum sekúndum fyrir leikslok. Svíar gátu þá tryggt sér sigur sem hefði gert að verkum að Ísland væri ekki með örlögin í eigin höndum í leiknum við Slóvena í dag. Sem betur fer kastaði sænski markvörðurinn Andreas Palicka boltanum rétt framhjá marki Ungverja og niðurstaðan varð því jafntefli. Dómararnir hefðu hins vegar ekki átt að dæma ruðning heldur vítakast fyrir Ungverja. Ef það hefði endað í netinu hefði Íslandi dugað jafntefli gegn Slóveníu í dag, en ekki aðeins sigur. TV 2 í Danmörku kallaði eftir svörum frá EHF um málið, í ljósi þess að dómararnir skoðuðu atvikið á myndbandi en ákváðu samt að breyta engu. Svörin voru hins vegar rýr, eins og fyrr segir. „Ákvörðunin um að skoða upptöku myndbandsins er í samræmi við reglur um upptöku myndbands, aðstæður nr. 9 – úrslitastöður leiksins á síðustu 30 sekúndum. Sú ákvörðun sem síðar kemur er staðreyndarákvörðun byggð á því sem dómararnir sáu. EHF er meðvitað um opinbera umræðu um ákvörðunina. Að jafnaði eru allir leikir, ákvarðanir sem teknar eru og ferlar skoðaðir. Þetta er þó eingöngu innra ferli,“ segir í svarinu.
EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Sjá meira