Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Árni Sæberg skrifar 27. janúar 2026 14:15 Sunna Björg Helgadóttir verður forstjóri Rio Tinto Á Íslandi með vorinu. Rio Tinto Sunna Björg Helgadóttir hefur verið ráðin forstjóri Rio Tinto á Íslandi. Hún mun taka við starfinu í vor af Rannveigu Rist, sem gegnt hefur starfinu frá árinu 1997. Hún mun einnig taka sæti Rannveigar í framkvæmdastjórn Aluminium Atlantic deildarinnar innan Rio Tinto.
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að Sunna Björg hafi langa og fjölbreytta reynslu af stjórnunarstörfum meðal annars á sviði áliðnaðar og orkuframleiðslu. Sunna Björg komi til Straumsvíkur frá HS Orku, þar sem hún hafi verið framkvæmdastjóri tæknisviðs síðan 2020. Áður hafi Sunna Björg starfað sem framkvæmdastjóri tæknisviðs hjá Alvotech á árunum 2016 til 2020. Sunna Björg þekki vel til starfsemi Rio Tinto á Íslandi en hún hafi starfað hjá fyrirtækinu á árunum 2001 til 2015, síðast sem framkvæmdastjóri kerskála. Sunna Björg sé með B.Sc. gráðu í efna- og vélaverkfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. gráðu í rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík. „Það er mér mikil ánægja að snúa aftur til starfa hjá Rio Tinto á Íslandi, sem ég þekki vel af fyrri störfum. Fyrirtækið er rótgróið en hefur jafnframt verið í stöðugri þróun og gegnt lykilhlutverki í íslenskum iðnaði í meira en hálfa öld. Það er svo sannarlega spennandi að taka við fyrirtæki sem byggir á svo traustum grunni og skýrri framtíðarsýn. Ég hlakka mikið til að leiða félagið áfram með þeim frábæra hópi starfsfólks, sem hefur verið undirstaðan að farsælum rekstri þess síðustu ár,“ er haft eftir Sunnu Björgu. „Ráðning Sunnu Bjargar markar tímamót fyrir álverið í Straumsvík, þar sem Rannveig Rist hefur átt farsælan og eftirtektarverðan feril sem forstjóri í tæp 30 ár. Víðtæk og fjölbreytt reynsla Sunnu mun nýtast einkar vel, bæði í rekstri sem og þróun álversins til framtíðar. Starfsreynsla hennar hjá fyrirtækinu veitir auk þess mikilvæga tengingu við starfsemi og starfsfólk fyrirtækisins. Það er alltaf ánægjulegt þegar fyrrum starfsfólk snýr aftur til fyrirtækisins reynslunni ríkari. Jafnframt vil ég nýta tækifærið til að þakka Rannveigu Rist fyrir hennar mikilsverða og dýrmæta starf. Rannveig er sannkallaður brautryðjandi og framlag hennar til fyrirtækisins og áliðnaðarins verður seint fullþakkað. Hún hefur mótað fyrirtækið með framúrskarandi leiðtogahæfileikum, framsýni og hugrekki,“ er haft eftir Sébastien Ross, framkvæmdastjóra Aluminium Atlantic hjá Rio Tinto.
Stóriðja Áliðnaður Vistaskipti Hafnarfjörður Mest lesið Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Innkalla þurrmjólkina eftir allt saman Neytendur Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Ætluðu að nýta greidd sæti en fengu ekki Neytendur Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira