Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Jón Þór Stefánsson skrifar 25. janúar 2026 12:15 Bjarni Halldór fer úr Viðreisn yfir í Samfylkinguna. Bjarni Halldór Janusson, fyrrverandi varaþingmaður Viðreisnar og aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, ætlar í framboð með Samfylkingunni í Reykjanesbæ.
Þetta staðfestir hann í samtali við fréttastofu. Hann segist ekki geta sagt til um hvar hann verði á lista Samfylkingarinnar, en það verður tilkynnt komandi þriðjudag. Bjarni Halldór hefur tekið þátt í starfi Viðreisnar frá árinu 2014 og var meðal stofnenda flokksins og fyrsti forseti ungliðahreyfingarinnar. Hann segist kveðja Viðreisn í góðu. „Ég hef ekkert nema gott að segja um minn tíma þar,“ segir hann. „Mér bauðst þetta tækifæri og ætla að stökkva á vagninn, en skil við mitt fólk í góðu. Ég hef alltaf verið mitt á milli Samfylkingarinnar og Viðreisnar í skoðun, þannig þetta er ekkert fjarlægt mér.“ Líkt og áður segir aðstoðaði Bjarni núverandi utanríkisráðherra. Þá var hann varaþingmaður Viðreisnar. Hann rataði í fréttirnar árið 2017, en þá tók hann sæti á Alþingi, yngstur allra í sögunni, 21 árs og 142 daga gamall. Met Bjarna var fyrst toppað ári síðar þegar Karl Liljendal Hólmgeirsson, sem var tuttugu ára og 355 daga, tók sæti. Nú á Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir metið. Hún tók sæti á Alþingi, nítján ára og 241 daga gömul árið 2021.
Reykjanesbær Viðreisn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Fleiri fréttir Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Sjá meira