Kominn heim með ótrúlegt Íslandsmet: „Fann fyrir miklum létti“ Aron Guðmundsson skrifar 24. janúar 2026 09:32 Baldvin Þór Magnússon hljóp á frábæru nýju Íslandsmeti í Valencia á dögunum Vísir/Anton Brink Hlauparinn Baldvin Þór Magnússon segist hafa átt nær fullkomið hlaup er hann hljóp, fyrstur Íslendinga tíu kílómetra götuhlaup á undir tuttugu og átta mínútum í Valencia á Spáni og tryggði sér þar með þátttökurétt á stóru móti í sumar.
Afrek Baldvins gífurlegt en með hlaupinu í Valencia, upp á 27 mínútur og fjörutíu sekúndur ,bætti hann þáverandi Íslandsmeti sitt, sem hann setti í fyrra um tæpa mínútu. „Þetta var mjög sérstakt hlaup. Það er ekki oft sem að maður fær að upplifa fullkomið hlaup en ég myndi segja að þetta hlaup hafi komist mjög nálægt því,“ segir Baldvin í samtali við íþróttadeild Sýnar. „Í hópnum sem ég hljóp í voru mjög margir að eltast við sama tímann, svona rétt undir 27:50 sem er lágmarkið sem þarf að ná fyrir Evrópumeistaramótið í Birmingham seinna á þessu ári. Veðrið var fullkomið og æfingarnar síðustu þrjá til fjóra mánuðina fyrir mót höfðu gengið ótrúlega vel. Ég fór í háfjalla æfingabúðir í tvígang og það gekk mjög vel, allt small saman einhvern veginn og þegar það er raunin getur eitthvað svona gerst.“ Fann fyrir miklum létti Er Baldvin kom í mark í umræddu hlaupi mátti sjá hann grípa um höfuð sitt af undrun gagnvart því að honum hefði tekist þetta, að hlaupa undir lágmarkinu og á nýju stórbættu Íslandsmeti. „Ég þurfti að vera mjög rólegur allan tímann á meðan að hlaupinu stóð og þegar að komst í mark þá tóku tilfinningarnar loks að streyma fram og ég hugsaði með mér: „þetta tókst.“ Fyrir þann tímapunkt hafði ég bara aðallega verið hræddur um að eitthvað gæti komið upp á, þetta gæti allt í einu orðið rosalega erfitt eða hópurinn gæti farið að slíta sig frá mér. Ég fann fyrir miklum létti þegar ég komst í mark.“ Það voru fáir ef nokkrir aðrir en Baldvin sem höfðu trú á því að Íslendingur gæti hlaupið tíu kílómetra á undir tuttugu og átta mínútum á næstunni. Baldvin hefur gert það að vana undanfarin ár að setja ný Íslandsmet en í styttri hlaupum hefur hans sérgrein verið. Það er þó ekkert launungarmál að það liggur vel fyrir hann að taka tíu kílómetrana. „Ég var bara aldrei búinn að leggja mig almennilega fram í 10 kílómetrahlaupum, bæði hvað varðar æfingar og svo hvað varðar að reyna fyrir mér í svona sterkri keppni eins og Valencia hlaupið er. Þetta er hraðasta keppni í heimi. Ég myndi segja að þetta hafi allt verið að stefna í þessa átt hjá mér en ef þú hefðir spurt mig fyrir nokkrum árum síðan hvort ég myndi einhvern tímann geta hlaupið tíu kílómetra á undir 28 mínútum þá hefði ábyggilega hikað.“ Þáttökuréttur í höfn á stóru móti Á þessu nýja Íslandsmeti náði Baldvin lágmarkinu fyrir Evrópumeistaramótið í frjálsum íþróttum sem haldið verður í Birmingham í ágúst seinna á árinu. Eins konar heimamót fyrir Baldvin sem býr á Bretlandseyjum og ef plön hans ganga eftir verður tíu kílómetra hlaupið ekki eina keppnisgrein hans á umræddu móti. „Ég ætla reyna ná lágmarkinu fyrir fimm kílómetra hlaup líka. Mun reyna gera það í júní/júlí. Þarf að hlaupa þá kílómetra á undir 13:08 mínútum. Það er gott að vera kominn með tíu kílómetrana í bankann, þá get ég líka undirbúið mig fyrir að hlaupa þá hratt í Birmingham í miðjum ágústmánuði. Það væri erfitt vera enn að eltast við lágmarkið í tíu kílómetrunum og þurfa síðan að hlaupa þá aftur í ágúst. Núna get ég meira einblínt á að vera vel staddur til þess að virkilega keyra á þetta þegar kemur að Evrópumeistaramótinu í Birmingham. Ég er búinn að búa á Englandi í einhver tuttugu og tvö ár, maður er alveg smá enskur, hálfur Breti.“ Baldvin Þór Magnússon hafði áður sett Íslandsmet í 10 km götuhlaupi í Rúmeníu á síðasta ári.Instagram/vinnym_99 Þriðja Íslandsmetið á RIG þriðja árið í röð? Baldvin er mættur hingað til lands til þess að keppa á Reykjavík International Games seinna dag í 1500 metra hlaupi. Hann er ríkjandi Íslandsmethafi í greininni og hefur síðustu tvö ár bætt Íslandsmetið á mótinu. „Það er svolítið öðruvísi að fara núna inn í keppni sem stendur yfir í kannski þrjá og hálfa mínútu eftir að hafa síðast keppt í hlaupi í Valencia sem stóð yfir í rúmar tuttugu og sjö og hálfa mínútu. Þetta eru tuttugu og fjórar mínútur sem ég er að skera af í keppni. Ég veit að formið er gott, veit það verður stemning og keppnin er á Íslandi. Það keyrir mig alltaf áfram. Þá eru sterkir keppendur að mæta til leiks frá Bretlandi, sterkir tvíburar og annar ungur þaðan. Ég tel það alveg gerlegt að stefna á Íslandsmetið aftur þó ég sé ekki búinn að undirbúa mig jafn vel fyrir 1500 metrana eins og áður en ef formið er gott, stemningin góð, þá get ég alveg hlaupið 1500 metrana hratt.“
Frjálsar íþróttir Mest lesið UEFA rannsakar ekki kynþáttaníð Ísraela Fótbolti Litu niður í þjóðsöngnum og tóku ekki í hendur Ísraela Fótbolti HM-hetjan harmar frægðina: „Myndi frekar velja lífið sem ég átti áður“ Fótbolti „Öll vandamál eins og kjúklingaskítur eftir þetta“ Fótbolti Fagnar 19 ára afmæli með landsliðinu: „Hljóp til mömmu og lét hana vita“ Fótbolti Fengu tvö rauð spjöld fyrir hártog á tuttugu mínútum Fótbolti Má ekki mæta Íslandi eftir dóm fyrir heimilisofbeldi Fótbolti Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Golf Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Golf Hætti keppni á heimsmeistaramóti þrátt fyrir góðan undirbúning Sport Fleiri fréttir Lélegur landsleikur, Írar öflugir og City í brasi Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Minden keypti Erling af ÍBV Má ekki mæta Íslandi eftir dóm fyrir heimilisofbeldi „Hluti af vegferðinni“ UEFA rannsakar ekki kynþáttaníð Ísraela Fagnar 19 ára afmæli með landsliðinu: „Hljóp til mömmu og lét hana vita“ HM-hetjan harmar frægðina: „Myndi frekar velja lífið sem ég átti áður“ Sjáðu vörslurnar: „Hákon var langbesti íslenski leikmaðurinn“ „Öll vandamál eins og kjúklingaskítur eftir þetta“ Segir Horner vera að trufla Ferrari Dagskráin í dag: Belgía tekur á móti stórliði Frakklands Fengu tvö rauð spjöld fyrir hártog á tuttugu mínútum Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Hætti keppni á heimsmeistaramóti þrátt fyrir góðan undirbúning Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Costa var hetja Portúgal og Klopp enn án sigurs Sleppir verðlaunaafhendingu til að losna við herskyldu Litu niður í þjóðsöngnum og tóku ekki í hendur Ísraela Zverev náði að tryggja Evrópu sigurinn Ísrael - Írland 0-3 | Lærisveinar Heimis tóku Ísrael í bakaríið Dorgu þurfti að fara meiddur af velli í sigri Danmerkur Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ „Úrslitin í leiknum algjörlega verðskulduð“ Hvar er orkan sem sást á Instagram? „Þetta er flatt“ Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Baldur Fritz markahæstur í sigri Kristianstad Sjá meira