Nú má heita Friðálv Gletting Lucíuson Árni Sæberg skrifar 21. janúar 2026 14:29 Mannanafnanefnd gerði engar athugasemdir ef þessi kona skírði barnið Friðálv Gletting og tæki sjálf upp nafnið Lucía. Getty/Nasos Zovoilis Mannanafnanefnd kom saman á fundi í gær og samþykkti sex ný nöfn á mannanafnaskrá. Þeirra á meðal eru karlmannsnafnið Friðálv og millinafnið Gletting.
Kveðnir voru upp úrskurðir um sex beiðnir um skráningu nafns á mannanafnaskrá og allar beiðnirnar voru samþykktar. Nöfnin sem samþykkt voru karlmannsnöfnin Ásbrandur, Draumur, Friðálv, Hrymur og Styrkur, kvenmannsnafnið Lucía og millinafnið Gletting. Nefndin samþykkti öll nöfnin án frekari rökstuðnings en að þau uppfylltu öll skilyrði laga um mannanöfn, fyrir utan nafnið Lucía. Það samþykkti nefndin með vísan til þess að það sé ritháttarafbrigði nafnanna Lúsía, Lucia og Lúcía, sem séu á mannanafnaskrá. Það uppfylli þannig þrjú af fjórum skilyrðum laganna en þar sem bókstafurinn c sé ekki í íslenska stafrófinu sé nafnið ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls og því aðeins unnt að samþykkja nafnið að hefð sé fyrir þessum rithætti þess. Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands beri enginn einstaklingur, sem uppfylli skilyrði vinnulagsreglna mannanafnanefndar varðandi hefð, nafnið Lucía. Nafnið Lucia komi fyrir í ýmsum ritmyndum í manntölum og í tveimur þeirra sé nafnið ritað með umbeðnum rithætti. Þar sem nafnið komi fyrir í manntali 1920 og sú sem nafnið bar hafi látist árið 1964 telji mannanafnanefnd að hefð sé fyrir þessum rithætti nafnsins með vísan til vinnulagsreglna og það sé því samþykkt.
Mannanöfn Úrskurðar- og kærunefndir Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent „Hún drap börnin“ Erlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Fleiri fréttir Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur viðburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Sjá meira