Sveppi, Edda og Villi Neto keppa í Taskmaster Magnús Jochum Pálsson skrifar 21. janúar 2026 10:14 Edda Björgvins, Sveppi, Sigurður Þór, Snjólaug Lúðvíks og Villi Neto munu keppa í íslenska Taskmaster. Fimm vel valdir keppendur hafa farið á kostum við upptökur á fyrstu þáttaröðinni af íslensku útgáfu skemmtiþáttarins Taskmaster sem hefur göngu sína á SÝN í lok mars næstkomandi.
Í þættinum etja fimm íslenskir skemmtikraftar kappi í óvæntum og oft furðulegum þrautum sem krefjast útsjónarsemi, hugmyndaauðgi og húmors. Allt er þetta gert í nafni heiðurs og hláturs en einnig til að finna út hver verði hinn eini sanni þrautakóngur. Þættinum, þrautunum og keppninni verður stjórnað af Ara Eldjárni sem verður Taskmasterinn og Jóhanni Alfreð Kristjánssyni aðstoðarmanni hans sem leiðir keppendur í gegnum þrautirnar skemmtilegu. Leikarar og grínistar Keppendur fyrstu þáttaraðarinnar þarf vart að kynna enda eiga þau það sameiginlegt að vera þekkt fyrir grín sitt og gaman sem leikarar, skemmtikraftar, uppistandarar og samfélagsmiðlastjörnu. Keppendurnir eru: Edda Björgvinsdóttir, leikkona; Snjólaug Lúðvíksdóttir, uppistandari; Sigurður Þór Óskarsson, leikari; Sverrir Þór Sverrisson/Sveppi, skemmtikraftur og sjónvarpsstjarna; Vilhelm Netó, leikari og uppistandari. Taskmaster hóf fyrst göngu sína í Bretlandi og hefur síðan farið sigurför um heiminn, verið framleiddir og sýndir í á þriðja tug landa. Hefur það víða þótt eftirsótt að komast að sem keppandi í þessum gríðarvinsælu þáttum. Tökur halda áfram í febrúar þegar skorið verður úr um hver ber sigur úr bítum í fyrstu íslensku þáttaröð Taskmaster. Aðdáendum gefst kostur á að vera viðstaddir upptökur en hægt er að skrá sig á dagsetningar hér en þar er tuttugu ára aldurstakmark. Vísir er í eigu Sýnar.
Sýn Bíó og sjónvarp Kvikmyndagerð á Íslandi Taskmaster – Ísland Mest lesið „Þú ert stærsta súperstjarnan á plánetunni jörð“ Tónlist Frekari skakkaföll í leikhúsunum Lífið Miðflokkskonur gera sig klárar í bátana Lífið Öskrað á of litlu sviði Gagnrýni Líklega ekki langt í fyrstu bótoxsprautuna í punginn hér á landi Lífið Poppstjarna notaði lag Bríetar: „Litla Bríet er að öskra núna“ Lífið Opna Laufeyjarverslun fyrir tónleikana Tónlist Britney Spears handtekin og í haldi yfir nótt Lífið Tóti og Ósk eiga von á túrbóbarni Lífið Þessi eru tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2026 Lífið Fleiri fréttir Bruce Campbell með ólæknandi krabbamein Fyrirsætan og Dallas-leikkonan Annabel Schofield látin Sverja af sér samsæriskenningar um klónaðan Carrey Tækifærin þurrkuðust upp eftir stuðning við Palestínu Síðasti þáttur Nágranna í loftið á Sýn og aðdáandi syrgir Báðust afsökunar á niðrandi hljóðkækjum Borðtennisspaðar fóru tómhentir af BAFTA-hátíðinni Gyða semur tónlist fyrir kvikmynd Bad Bunny Hryllilega góð stemming á frumsýningu Röskunar Tæklar næst ítalskar kynlífskómedíur Nicolas Cage dularfullur köngulóarspæjari Múmían rís í fjórða sinn Ungir hjartaknúsarar mæta á hvíta tjaldið Meryl Streep verður Joni Mitchell Sjá meira