„Átti alveg von á því að þetta tæki lengri tíma“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 16. janúar 2026 19:23 Snorri Steinn hlustar á ráðleggingar Arnórs Atlasonar í leiknum gegn Ítalíu. EPA/Johan Nilsson SWEDEN OUT „Ég er bara mjög ánægður með liðið. Mér fannst þetta frábær leikur og góður sigur af okkar hálfu“ sagði landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson eftir mjög öruggan 39-26 sigur gegn Ítalíu í fyrsta leik Íslands á EM. Hann byrjar nú að undirbúa liðið fyrir næsta leik gegn Póllandi en það verður eilítið erfitt.
Klippa: Snorri Steinn sáttur með sigurinn gegn Ítalíu Strákarnir okkar fóru létt með fyrsta leik, þó liðið hafi hökt aðeins í upphafi leiks og tekið sér smá tíma í að stilla miðið. „Mér fannst þetta ekki vera neitt hökt. Þetta er bara gott lið sem við vorum að mæta og ég átti alveg von á því að þetta tæki lengri tíma. Mér fannst við samt fínir í byrjun, klikkuðum aðeins á færum og gáfum þeim auðveld mörk þarna hægra megin en vorum fljótir að stoppa það. Eitt leiddi af öðru en það var mjög gott að hafa þetta forskot í hálfleik.“ Snorri Steinn stóðst ekki mátið gegn þessu óhefðbundna ítalska liði og lét Ísland líka spila án línumanns. „Við prófuðum alls konar hluti og gerðum alls konar en aðalhugmyndin var að láta þá hugsa, pæla í hverju þeir ættu að gera og helst láta þá glíma við fleiri en einn hlut í einu. Það virkaði vel.“ Pólverjar í feluleik Nú hefst undirbúningur fyrir næsta leik, gegn Póllandi á sunnudag. Snorri segist ekki hafa hugsað um neitt annað en Ítalina síðustu daga og mun eiga aðeins erfiðara með að undirbúa liðið fyrir leikinn gegn Póllandi því þar hefur hann úr minna myndefni að moða. „Ég er ekkert að grínast með það, ég er bara búinn að hugsa um Ítalíu síðustu þrjá daga. Nú tekur við næsta verkefni og við byrjum á því í kvöld. Það verður líka krefjandi, Pólverjarnir eru búnir að vera í einhverjum feluleik þannig að við erum ekki með æfingaleikina þeirra fyrir mót eða annað slíkt. Við þurfum að kíkja vel á þá.“ Viðtalið við Snorra má sjá í spilaranum að ofan.
Landslið karla í handbolta EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Enski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Fótbolti „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Segir ekki mikil gæði vera hjá ökumönnum í Formúlu 1 Formúla 1 Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Fleiri fréttir „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sjá meira