Hafa náð einu og hálfu prósenti af Úkraínu á þremur árum Samúel Karl Ólason skrifar 16. janúar 2026 13:00 Úkraínskir hermenn nærri víglínunni í Dónetskhéraði. Getty/Marharyta Fal, Frontliner Rússar hafa gert árásir á hvert einasta orkuver í Úkraínu og ítrekaðar árásir á aðra borgaralega innviði, á sama tíma og Úkraínumenn standa frammi fyrir einhverjum kaldasta vetri á svæðinu í árabil. Með því vilja Rússar draga máttinn úr úkraínsku þjóðinni til að verjast innrás þeirra en á undanförnum þremur árum hafa Rússar eingöngu lagt undir sig eitt og hálft prósent af Úkraínu.
Denys Shmyhal, orkumálaráðherra Úkraínu, sagði í morgun að rúmlega fimmtán þúsund manns vinni við það að halda orkukerfi landsins gangandi og þeir nytu aðstoðar tuga þúsunda annarra, eins og lögregluþjóna og björgunarsveita. Samhliða því er reynt að styrkja orkukerfið svo Rússar eigi erfiðara með að valda rafmagnsleysi. Ástandið er hvað verst, samkvæmt ráðherranum, í Kænugarði og nærliggjandi svæðum og kringum Odessa í suðurhluta landsins og í bæjum og borgum næst víglínunni. Í Kænugarði hafa yfirvöld reist sérstök upphituð tjöld sem fólk getur leitað í vegna kuldans. Þar er rafmagns- og hitaleysi mjög algengt þessa dagana. These eerie emergency heating shelters have popped around Kyiv, as authorities try to help people cope with heat and electricity outages caused by Russian air strikes, which have deliberately targeted energy facilities. pic.twitter.com/Rj2FlZZvQD— Mike Eckel (@Mike_Eckel) January 16, 2026 Eitt og hálft prósent á þremur árum Bandaríska hugveitan Institute for the Study of War, sem vaktað hefur átökin í Úkraínu frá upphafi og hefur haldið utan um kort af yfirráðasvæðum í átökunum, hefur birt greiningu á landvinningum Rússa frá því innrásin var gerð í febrúar 2022. Þar segir að ráðamenn í Rússlandi haldi áfram að dreifa þeim falska boðskap að varnir Úkraínumanna séu við það að bresta. Vísa þeir í ummæli Dmitrís Pekóv, talsmann Vladimírs Pútín forseta, frá því í gær þar sem hann sagði að aðstæður Úkraínumanna færu sífellt versnandi og glugginn til að semja væri að lokast. Ráðamenn í Rússlandi varpa reglulega fram slíkum fullyrðingum. Sjá einnig: Kennir Selenskí enn og aftur um Þegar mest var, í mars 2022, stjórnuðu Rússar um 26,16 prósentum af Úkraínu. Rússar hörfuðu síðan frá svæðinu norður af Kænugarði og voru síðan reknir frá bæði Karkív og Kherson. Í lok ársins 2022 stjórnuðu þeir um 17,84 prósentum af Úkraínu. Síðan þá hefur framsókn Rússa í Úkraínu, og þá helst í austurhluta landsins, verið mjög hæg og er talin mjög kostnaðarsöm. Sjá einnig: Sífellt fleiri hermenn falla á ári hverju Undir lok síðasta árs stjórnuðu Rússar 19,32 prósentum af Úkraínu, sem þýðir að á heilum þremur árum hafi þeir eingöngu lagt undir sig eitt og hálft prósent af Úkraínu. Í grein ISW segir að Rússum hafi ekki tekist að beita skrið- og bryndrekum með góðum hætti. Þess í stað notast Rússar við sóknir fótgönguliða og oft í smærri hópum. Sérfræðingar ISW telja að framsókn Rússa haldi líklega áfram og að hún verði áfram mjög hæg og kostnaðarsöm. Þá sé ólíklegt að Rússar muni geta brotið varnir Úkraínumanna á bak aftur með þeim hætti. 2/ Russian forces controlled between 17.9 and 18.52 percent of Ukraine in 2023 and 2024, and this figure rose to 19.32 percent by the end of 2025. Russian forces have thus occupied an additional 1.5 percent of Ukraine’s territory in the last three years. pic.twitter.com/JNF885lmJx— Institute for the Study of War (@TheStudyofWar) January 16, 2026
Rússland Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Vladimír Pútín Hernaður Tengdar fréttir Bretar ætla að framleiða skotflaugar fyrir Úkraínu Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að Úkraínumenn ætli að auka umfang árása innan landamæra Rússlands. Þannig vilji þeir auka þrýstinginn á Rússland og grafa undan getu Rússa til að halda stríðsrekstrinum áfram. 12. janúar 2026 14:07 Segist hafa grænt ljós frá Trump fyrir frekari refsiaðgerðum gegn Rússum Lindsey Graham, öldungadeildarþingmaður Repúblikanaflokksins Í Bandaríkjunum, lýsti því yfir í gærkvöldi að hann hefði fengið Donald Trump, forseta, til að veita frumvarpi um hertar refsiaðgerðir gagnvart Rússum blessun sína. Frumvarpið, sem nýtur stuðnings þingmanna úr báðum flokkum Bandaríkjanna, var samið fyrir mörgum mánuðum síðan en aldrei lagt fyrir þing vegna andstöðu Trumps. 8. janúar 2026 13:29 „Stórt framfaraskref“ Forsetar Úkraínu og Frakklands og forsætisráðherra Breta undirrituðu í kvöld samkomulag um varnir Úkraínu. Með undirrituninni samþykkja Bretar og Frakkar að senda hermenn til Úkraínu í kjölfar samkomulags um vopnahlé. 6. janúar 2026 21:19 Vill lengri tryggingar og tilbúinn til að hitta Pútín Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að nýjar friðartillögur sem hafi verið til umræðu milli hans og Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, í Flórída í gær innihaldi meðal annars tillögu um fimmtán ára öryggistryggingar handa Úkraínu. Selenskí segir að þær yrði svo hægt að framlengja enn frekar en hann lagði til við Trump í gær að öryggistryggingarnar næðu til allt að fimmtíu ára. 29. desember 2025 10:46 Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Sjá meira
Bretar ætla að framleiða skotflaugar fyrir Úkraínu Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að Úkraínumenn ætli að auka umfang árása innan landamæra Rússlands. Þannig vilji þeir auka þrýstinginn á Rússland og grafa undan getu Rússa til að halda stríðsrekstrinum áfram. 12. janúar 2026 14:07
Segist hafa grænt ljós frá Trump fyrir frekari refsiaðgerðum gegn Rússum Lindsey Graham, öldungadeildarþingmaður Repúblikanaflokksins Í Bandaríkjunum, lýsti því yfir í gærkvöldi að hann hefði fengið Donald Trump, forseta, til að veita frumvarpi um hertar refsiaðgerðir gagnvart Rússum blessun sína. Frumvarpið, sem nýtur stuðnings þingmanna úr báðum flokkum Bandaríkjanna, var samið fyrir mörgum mánuðum síðan en aldrei lagt fyrir þing vegna andstöðu Trumps. 8. janúar 2026 13:29
„Stórt framfaraskref“ Forsetar Úkraínu og Frakklands og forsætisráðherra Breta undirrituðu í kvöld samkomulag um varnir Úkraínu. Með undirrituninni samþykkja Bretar og Frakkar að senda hermenn til Úkraínu í kjölfar samkomulags um vopnahlé. 6. janúar 2026 21:19
Vill lengri tryggingar og tilbúinn til að hitta Pútín Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að nýjar friðartillögur sem hafi verið til umræðu milli hans og Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, í Flórída í gær innihaldi meðal annars tillögu um fimmtán ára öryggistryggingar handa Úkraínu. Selenskí segir að þær yrði svo hægt að framlengja enn frekar en hann lagði til við Trump í gær að öryggistryggingarnar næðu til allt að fimmtíu ára. 29. desember 2025 10:46