Í lífstíðarbann fyrir þessa óhuggulegu tæklingu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. janúar 2026 09:32 Muhammad Hilmi Gimnastiar fékk ekki bara rauða spjaldið, heldur missti hann samning sinn og var dæmdur í lífstíðarbann. @usspofficial Knattspyrnumaður í Indónesíu fær ekki að spila íþrótt sína aftur út ævina eftir fólskulega tæklingu í leik.
Muhammad Hilmi Gimnastiar, miðjumaður PS Putra Jaya Pasuruan, var dæmdur í lífstíðarbann og gert að greiða 2,5 milljónir rúpía í sekt eftir hrottalega árás á vellinum í fjórðu deild landsins. 2,5 milljónir indónesískra rúpína eru tæplega nítján þúsund íslenskar krónur. Andstæðingurinn á sjúkrahús Atvikið sem um ræðir leiddi til þess að leikmaður mótherjanna var lagður inn á sjúkrahús og kom af stað umræðu á landsvísu um ofbeldi í fótbolta og hvernig stjórnvöld íþróttarinnar eigi að bregðast við þegar farið er yfir strikið. Aðeins nokkrum klukkustundum eftir leikinn tilkynnti Putra Jaya Pasuruan að samningi Gimnastiar hefði verið rift og sendi félagið frá sér opinbera afsökunarbeiðni til Perseta 1970 Tulungagung. Forseti aganefndar knattspyrnusambands Austur-Java studdi þessa afstöðu og réttlætti úrskurðinn með því að segja að verknaðurinn „bryti ekki aðeins í bága við íþróttagildi, heldur stofnaði einnig lífi annars leikmanns í hættu“. Samningnum rift Putra Jaya Pasuruan tilkynnti að samningi Gimnastiar hefði verið rift og sendi frá sér opinbera afsökunarbeiðni til perseta 1970 Tulungagung. Árásin átti sér stað á 71. mínútu leiksins, þegar Perseta 1970 Tulungagung leiddi 4-0. Upptökur frá opinberri rás deildarinnar sýna Gimnastiar hunsa boltann og sparka í karate-stíl beint í brjóstkassa Firman Nugraha. Brotið má sjá hér fyrir neðan. View this post on Instagram A post shared by USSP 🌍 (@usspofficial) Lyfti strax rauða spjaldinu Dómarinn lyfti strax rauða spjaldinu á meðan Nugraha hneig niður á völlinn og var borinn út á sjúkrabörum til að fá bráðalæknisaðstoð. Nugraha var fluttur á sjúkrahús þar sem læknar staðfestu að meiðsli hans væru ekki lífshættuleg, þótt hann þyrfti súrefni og gjörgæslu. Hann rifbeinsbrotnaði meðal annars. Að sögn nefndarinnar var lífstíðarbannið ekki aðeins sett til að refsa Gimnastiar, heldur einnig til að senda skýr skilaboð til allra leikmanna um að slík hegðun verði alls ekki liðin. Ekki þekktur fyrir ofbeldisfulla hegðun Gimnastiar, sem er fæddur árið 2005 og klæddist treyju númer 23, átti sér enga sögu um ofbeldisfulla hegðun. Leikurinn sjálfur endaði með 7-2 sigri Perseta 1970 Tulungagung, en úrslitin féllu í skuggann af atvikinu og hraðri útbreiðslu þess á samfélagsmiðlum. Knattspyrnuyfirvöld víðs vegar um Indónesíu lýstu yfir eindregnum stuðningi við ákvörðunina og lögðu áherslu á að refsingin miðaði að því að vernda leikmenn og setja skýrt fordæmi í áhugamannafótbolta. Í deild sem oft er fjarri sviðsljósinu voru skilaboðin ótvíræð: sum hegðun á ekkert erindi í íþróttina, á hvaða stigi sem er. View this post on Instagram A post shared by OneFootball (@onefootball)
Indónesía Fótbolti Mest lesið Tárin flæddu þegar Leerdam tróð upp í gagnrýnendur Sport Vonn tjáir sig eftir atvikið óhugnanlega: „Sé ekki eftir neinu“ Sport Medalíur að skemmast á Vetrarólympíuleikunum Sport Sjáðu liðin sem Strákarnir okkar geta ekki mætt í riðlakeppni HM Handbolti Forsetinn telur íþróttafólkið best til þess fallið að meta eigin stöðu Sport Fer frá föður sínum í faðm Guðjóns Vals: „Þetta er risastórt“ Handbolti Kristrún bætti sig um þrettán sæti Sport Orri hlýtur mikið lof og skákar Mbappé Fótbolti „Ég svaf ekki mikið í nótt“ Sport Hárið ekki notað í neina ræðu Enski boltinn Fleiri fréttir „Vildi ekki ljúka tímabilinu svona“ Hárið ekki notað í neina ræðu Sagðir hafa gefið Ronaldo loforð Tómas kom inn á og AGF sneri leiknum sér í vil Freyja með þrennu er Víkingur valtaði yfir Fram Orri hlýtur mikið lof og skákar Mbappé Jóhann Berg án félags: „Spenntur fyrir næstu áskorun“ Getur þjálfað Hollywood-liðið ævilangt Vill verða Bond illmenni Hallgrímur bætist við landsliðshópinn Góðar fréttir af Alberti Kristján krækti í einn besta leikmann Bestu deildarinnar Hópurinn gegn Mexíkó: Gylfi snýr aftur í landsliðið „Tottenham er í fallbaráttu“ „Eins og hann sé að grátbiðja um að verða seldur“ „Ég elska að skora mörk“ Arnar með „óbragð í munni“ eftir skort á heilbrigðri skynsemi Sjáðu bombu Szoboszlai og allt dramað í lokin „Ég vissi að Carrick gæti orðið frábær stjóri“ Nýi leikmaður Liverpool meiddist alvarlega Real Madrid fylgir Barcelona eftir eins og skugginn Öll stúkan söng um Orra eftir markið hans Guðmundur Magnússon skiptir úr bláu í grænt „Enn og aftur dæmir dómarinn ekki okkur í vil“ „Við urðum að vinna, annars væri titilbaráttan búin“ Luis Diaz með þrennu á móti tíu mönnum Hoffenheim Manchester City kom til baka eftir stórskostlegt mark Szoboszlai Viktori tókst ekki að skora á Elías Cecilía hélt hreinu í Íslendingaslagnum á Ítalíu Ísak lagði upp mark í svekkjandi tapi Sjá meira