Rúmlega hálfur milljarður manna sótti um miða á HM Ágúst Orri Arnarson skrifar 15. janúar 2026 22:33 Donald Trump og Gianni Infantino á dögunum þegar dregið var í riðla fyrir komandi heimsmeistaramót og Trump fékk fyrstu friðarverðlaun FIFA. Vísir/Getty Yfir fimm hundruð milljón beiðnir um miða hafa borist alþjóða knattspyrnusambandinu FIFA fyrir HM í sumar.
Fyrstu umferð umsókna um miða stóð yfir í 33 daga og lauk í dag. FIFA greindi frá svimandi háum tölum á heimasíðu sinni. Um er að ræða metaðsókn í miða, enda er 48 þjóða heimsmeistaramótið í ár stærra en nokkru sinni fyrr. Umsóknir bárust frá öllum 211 þjóðunum sem eiga aðild að FIFA en fyrir utan gestgjafaþjóðirnar Bandaríkin, Kanada og Mexíkó voru flestar umsóknir frá Þýskalandi, Englandi, Brasilíu, Spáni, Portúgal, Argentínu og Kólumbíu. Vinsælustu leikirnir á HM. FIFA Vinsælasti leikurinn er leikur Kólumbíu og Portúgal þann 27. júní í Miami en á topp fimm listanum voru líka leikir Mexíkó og S-Kóreu þann 18. júní, úrslitaleikurinn í New Jersey þann 19. júlí, opnunarleikurinn milli Mexíkó og S-Afríku þann 11. júní og 32-liða úrslitaleikurinn í Toronto í Kanada þann 2. júlí. Miðasölunni er þó ekki alveg lokið og enn er hægt að sækja um miða á heimasíðu FIFA. FIFA hefur verið töluvert gagnrýnt fyrir hátt miðaverð á HM en forsetinn Gianni Infantino hefur svarað þeirri gagnrýni með því að benda á að ágóði miðasölunnar renni til aðildasambandanna og haldi í raun fótboltanum á heimsvísu á lífi. Í tilkynningu FIFA í dag segir að rúmlega níutíu prósent miðasöluágóðans muni renna til knattspyrnusambandanna.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Fleiri fréttir Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sjá meira