Guardiola segir að Haaland sé úrvinda Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. janúar 2026 14:32 Það hefur verið mikið álag á Erling Haaland hjá Manchester City og hann er farinn að þreytast sem knattspyrnustjóri hans tekur undir. Getty/ Robbie Jay Barratt Það hefur hægst verulega á markaskori norska framherjans Erling Braut Haaland að undanförnu og hann náði ekki að skora í undanúrslitum enska deildabikarsins í gærkvöldi.
Haaland lék allar nítíu mínúturnar en komst ekki á blað. Þetta var í fimmta sinn í síðustu sex leikjum sem Haaland kemst ekki á blað og eina markið hans í síðustu sex leikjum kom úr vítaspyrnu. Haaland skoraði hins vegar 25 mörk í fyrstu 23 leikjum tímabilsins, þar af nítján mörk í fyrstu sautján deildarleikjunum. Eftir leikinn á móti Newcastle í gær afhjúpaði knattspyrnustjórinn Pep Guardiola að Norðmaðurinn væri líklega að ganga á síðustu dropunum. Leikjaálagið á Englandi tekur sinn toll: „Vonandi kemur Omar [Marmoush] fljótlega aftur til að gefa Erling smá hvíld, því hann er úrvinda,“ sagði Spánverjinn að sögn Sam Lee hjá The Athletic. Guardiola: "Hopefully Omar comes back soon to give rest to Erling because Erling is exhausted."— Sam Lee (@SamLee) January 13, 2026 Antoine Semenyo skoraði sitt annað mark fyrir City í tveimur leikjum eftir félagaskiptin frá Bournemouth. En það var markið sem hann fékk ekki dæmt gilt sem varð aðalumræðuefnið. Vandinn var að annar fótur Haalands var rangstæður, en hafði hann áhrif á spilið? Já, töldu dómarinn Chris Kavanagh og VAR-teymið eftir fimm mínútna og 42 sekúndna umhugsun. „Ef þeir hefðu dæmt markið gilt hefði enginn horft á þetta og hugsað að það hefði ekki átt að standa. En samkvæmt reglunum, og hvort sem okkur líkar það betur eða verr, er ákvörðunin rétt,“ sagði fótboltasérfræðingurinn Jamie Redknapp hjá Sky Sports að lokum. Newcastle sótti í sig veðrið undir lokin en ljósu lokkar Nick Woltemade voru rétt of stuttir til að hann næði að skalla að marki. Þess í stað tryggði Rayan Cherki City 2-0 sigur með skyndisókn. Seinni leikurinn fer fram í Manchester þann 4. febrúar. 🚨🗣️ Pep Guardiola: "Hopefully Marmoush comes back soon to give rest to Haaland... Erling is exhausted!" pic.twitter.com/QwI9A0HtoU— The Touchline | 𝐓 (@TouchlineX) January 13, 2026
Enski boltinn Manchester City Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Arbeloa í brasi Enski boltinn Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira