Carrick nú talinn líklegastur til að taka við Man Utd Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. janúar 2026 09:00 Michael Carrick leiðir goðsagnalið Manchester United út á völlinn fyrir góðgerðaleik árið 2024. Getty/Ash Donelon Manchester United hefur enn ekki staðfest hver muni taka við liðinu en samkvæmt breska ríkisútvarpinu er Michael Carrick nú talinn líklegastur til að verða ráðinn knattspyrnustjóri Manchester United til bráðabirgða.
Þetta hefur blaðamaður BBC komist að samkvæmt heimildum frá fólki sem þekkir vel til ferlisins. Stjórnarmenn félagsins vonast til að ráðning verði klár þegar leikmenn snúa aftur til æfinga á miðvikudag. Þótt endanleg ákvörðun hafi ekki verið tekin er sagt að viðræður við þennan 44 ára gamla mann um stöðuna séu langt komnar. Carrick stýrði United áður í þremur leikjum sem bráðabirgðastjóri eftir að Ole Gunnar Solskjær var rekinn árið 2021. Hann vann tvo leiki og gerði eitt jafntefli en hætti eftir að Ralf Rangnick tók við sem bráðabirgðastjóri. Solskjær fundaði á laugardag Solskjær átti fund með stjórn félagsins á laugardag þar sem rætt var um endurkomu hans. United rak Ruben Amorim sem knattspyrnustjóra þann 5. janúar eftir fjórtán mánuði í starfi. Darren Fletcher, fyrrverandi miðjumaður United og skoska landsliðsins, fékk upphaflega tímabundna ábyrgð á aðalliðinu eftir brotthvarf Amorim. United tapaði fyrir Brighton í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar á sunnudag í því sem líklegt er að verði annar og síðasti leikur Fletcher við stjórnvölinn. Hann stýrði liðinu til jafnteflis gegn Burnley, sem er í fallbaráttu í ensku úrvalsdeildinni, síðastliðinn miðvikudag. Spilaði 464 leiki fyrir United Carrick, fyrrverandi miðjumaður enska landsliðsins, spilaði 464 leiki í öllum keppnum fyrir United á árunum 2006 til 2018, en hann var keyptur frá Tottenham af Sir Alex Ferguson. Hann hefur verið án atvinnu síðan hann var rekinn frá B-deildarliðinu Middlesbrough í júní síðastliðnum eftir tveggja og hálfs árs starf. Carrick kom Boro í umspil um sæti í úrvalsdeildinni tímabilið 2022–23, en liðið tapaði fyrir Coventry í undanúrslitum. Lið hans missti svo naumlega af efstu sex sætunum tvö tímabil í röð, sem leiddi til þess að Carrick missti starfið. Carrick, sem er fæddur í Wallsend, hefur ekki sömu stjórnunarreynslu og Solskjær, þar sem hann hefur aðeins gegnt einu föstu starfi hjá Middlesbrough. Byrjaði í teymi Jose Mourinho Eftir að hafa lagt skóna á hilluna eftir glæstan feril á Old Trafford gekk Carrick strax til liðs við þjálfarateymi Jose Mourinho hjá United í lok tímabilsins 2017–18. Eftir að Portúgalanum var sagt upp störfum hélt hann áfram sem aðalliðsþjálfari á meðan Solskjær stýrði liðinu í 168 leikjum.
Enski boltinn Manchester United Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Dagskráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum Sport Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Fótbolti Fleiri fréttir Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Sjá meira