„Myndum að sjálfsögðu taka honum opnum örmum“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. janúar 2026 08:14 Diogo Dalot er einn af þeim sem spiluðu undir stjórn Ole Gunnar Solskjær hjá Manchester United og eru þar enn. Getty/Matthew Peters Manchester United féll í gær út úr enska bikarnum og hefur enn ekki náð að vinna leik undir stjórn Darren Fletcher.
Tapleikurinn í gær var á Old Trafford en tapaðist 2-1 á móti Brighton eftir að gestirnir komust í 2-0. Enn er óvíst hver mun stýra liðinu það sem eftir er tímabilsins. Eftir bikartapið var Diogo Dalot spurður út í Ole Gunnar Solskjær á TV2 í Noregi. „Hann er maður sem veit um hvað þetta félag snýst. Hann hefur verið hér sem leikmaður og hann hefur verið hér sem knattspyrnustjóri,“ sagði Diogo Dalot. Portúgalinn var því ekki neikvæður gagnvart mögulegri endurkomu Solskjærs. „Ef hann er maðurinn sem kemur inn, þá myndum við að sjálfsögðu taka honum opnum örmum og berjast fyrir því að vinna fótboltaleiki. Hvort sem það verður hann eða annar stjóri, þá munum við gera það sama,“ sagði Dalot. Nokkrir fjölmiðlar hafa undanfarið greint frá því að bæði Solskjær og Michael Carrick hafi fundað með félaginu um tímabundið þjálfarastarf. Það var Darren Fletcher sem stýrði liðinu í tapinu gegn Brighton eins og í leiknum á undan sem endaði með jafntefli á móti Burnley. „Ég þarf að mæta á Carrington í fyrramálið, það er allt sem ég veit,“ sagði Fletcher á blaðamannafundinum eftir leikinn í gær. Hann sagði einnig að hann hefði ekki fengið neinar vísbendingar um hver yrði nýr aðstoðarþjálfari.
Enski boltinn Manchester United Mest lesið Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Fótbolti „Tek fyrri hálfleikinn á mig“ Fótbolti Óskar Smári Haraldsson: „Margt í okkar leik sem var ekki í lagi“ Fótbolti „Bið strákana um að vera djarfir með boltann og sækja“ Fótbolti Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Íslenski boltinn Fleiri fréttir Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Sjá meira
Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Íslenski boltinn
Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Íslenski boltinn