Stjarnan sendi Selfoss á botninn Sindri Sverrisson skrifar 10. janúar 2026 17:06 Eva Björk Davíðsdóttir lagði sín lóð á vogarskálarnar í dag. vísir/Hulda Margrét Stjörnukonur unnu afar dýrmætan sigur gegn Selfyssingum í dag, 34-28, þegar Olís-deild kvenna í handbolta hófst að nýju eftir jólafrí, eftir að hafa unnið Fram í síðasta leik fyrir fríið.
Þetta eru einu sigrar Stjörnunnar til þessa á tímabilinu en liðið er nú komið með fimm stig, öll eftir að hafa skipt um þjálfara í byrjun nóvember, og komst í dag upp fyrir Selfoss sem er enn með fjögur stig, eftir tólf leiki. Leikurinn var jafn framan af fyrri hálfleik en eftir að staðan hafði verið 12-12 fengu Stjörnukonur bara eitt mark á sig á síðustu níu mínútum fyrri hálfleiks og var staðan 16-13 að honum loknum. Stjarnan hélt svo áfram af sama krafti í upphafi seinni hálfleiks, skoraði fyrstu fimm mörkin og komst í 21-13. Eftir það var aldrei spurning hvernig færi og sigur heimakvenna öruggur, 34-28. Eva Björk Davíðsdóttir var markahæst Stjörnunnar í dag með 12 mörk úr 16 skotum en hún skoraði helming marka sinna af vítalínunni. Natasja Hammer kom svo næst með sex mörk og Sara Katrín Gunnarsdóttir skoraði fimm. Hjá Selfossi var Mia Kristin Syverud markahæst með átta mörk og Hulda Dís Þrastardóttir skoraði sex. Liðin tvö eru enn nokkuð á eftir liðinu í 6. sæti, KA/Þór, sem er með níu stig og á leik sinn við ÍR til góða sem nú er í gangi.
Stjarnan UMF Selfoss Olís-deild kvenna Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Fleiri fréttir Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Fram - Haukar | Geta haldið fullu húsi Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Sjá meira