Alfreð aðstoðaði Frey á Spáni Valur Páll Eiríksson skrifar 10. janúar 2026 11:30 Alfreð og Freyr þekkjast vel og það fór vel á með þeim á Marbella. Samsett/Vísir/Getty Alfreð Finnbogason, nýr íþróttastjóri Rosenborgar, og Freyr Alexandersson, þjálfari Brann, eru staddir á Marbella á Spáni þar sem æfingamót fer fram. Þeir skoðuðu saman komandi andstæðing Brann í Evrópudeildinni.
Norski miðillinn BA frá Bergen fylgist vel með öllu sem viðkemur Brann og þar náði naskur ljósmyndari myndum af Frey ásamt Eggerti Aroni Guðmundssyni og Sævari Atla Magnússyni, leikmönnum liðsins, á Marbella á Spáni. Þeir horfðu þar á æfingaleik austurríska liðsins Sturm Graz við Club Brugge frá Belgíu. Sturm Graz er eitt tveggja liða sem Brann mætir í síðustu leikjum norska liðsins í deildarhluta Evrópudeildarinnar í þessum mánuði. Brann mætir Midtjylland á heimavelli 22. janúar og sækir Styrm Graz heim viku síðar. BA náði myndum af fyrrum félaga Freys, Alfreð Finnbogasyni, og virtist fara vel á með þeim félögunum. Alfreð var leikmaður karlalandsliðsins þegar Freyr var aðstoðarþjálfari Eriks Hamrén á sínum tíma. Alfreð var þá einnig leikmaður Lyngby í Danmörku undir stjórn Freys. Alfreð og Freyr verða andstæðingar í Noregi á komandi ári en Alfreð tók í vikunni við sem íþróttastjóri Rosenborgar í Þrándheimi. Hann sat þó með Frey og aðstoðaði hann við njósnir um austurrískan mótherjann í vikunni. Brann hafnaði í fjórða sæti norsku úrvalsdeildarinnar á nýliðinni leiktíð og fer í Sambandsdeildina að ári. Liðið var aðeins einu stigi frá bronsi. Rosenborg hafnaði í sjöunda sæti deildarinnar, 14 stigum á eftir Brann. Brann er þá í 22. sæti Evrópudeildarinnar með átta stig. Efstu átta lið deildarinnar fara í 16-liða úrslit en liðin 16 þar fyrir neðan, í 9.-24. sæti, fara í umspil um sæti í 16-liða úrslitum.
Norski boltinn Íslendingar erlendis Evrópudeild UEFA Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Sjá meira