Manchester United bað Fletcher um að stýra liðinu í bikarnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. janúar 2026 07:15 Darren Fletcher þakkar stuðningsmönnum Manchester United fyrir leikinn í gærkvöldi. Getty/Robbie Jay Barratt Darren Fletcher segist ætla að vera á hliðarlínunni í bikarleik Manchester United gegn Brighton á sunnudag.
Fletcher, sem er fyrrverandi miðjumaður United, þjálfaði átján ára lið félagsins áður en hann tók við sem bráðabirgðastjóri. Hann stýrði liðinu í 2-2 jafntefli gegn Burnley í gærkvöldi eftir að Ruben Amorim var rekinn sem aðalþjálfari. Félagið hefur rætt við Ole Gunnar Solskjær og Michael Carrick um að taka við sem bráðabirgðastjóri fram á sumar. Ekki hefur verið tekin endanleg ákvörðun og Fletcher mun halda starfinu í að minnsta kosti einn leik í viðbót. „Þeir hafa tilkynnt mér að þeir vilji að ég stýri liðinu á sunnudag,“ sagði Fletcher á blaðamannafundi eftir leikinn á móti Burnley á Turf Moor. „Það var tilfinning fyrir því frá og með mánudeginum að svo gæti farið, en við vildum einbeita okkur að Burnley,“ sagði Fletcher. „En já, mér er falið að stýra liðinu á sunnudag, þannig að öll mín einbeiting og orka fer í það núna,“ sagði Fletcher. United kom til baka eftir að hafa lent undir gegn Burnley og náði 2-1 forystu þökk sé tveimur mörkum frá Benjamin Sesko áður en Burnley jafnaði metin. „Þeir sýndu frammistöðu sem hefði átt að vinna leikinn. Við sköpuðum mikið af færum, áttum 30 skot, björgun á marklínu, mark sem var dæmt af. Ef maður lítur á það þannig, þá hefðum við átt að vinna leikinn,“ sagði Fletcher. „Þetta var ekki fullkomið; við byrjuðum hægt,“ sagði hann. „Við skoruðum tvö frábær mörk. Það er enn margt sem þarf að vinna í, en ég var virkilega ánægður með framlag þeirra,“ sagði Fletcher.
Enski boltinn Manchester United Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Dagskráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum Sport Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Fótbolti Fleiri fréttir Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Sjá meira