Tvíburasysturnar óvænt hættar Sindri Sverrisson skrifar 6. janúar 2026 14:21 Anna Lilja og Lára Ösp hafa ákveðið að láta gott heita hjá Njarðvík. UMFN Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur tilkynnti óvænt í dag, fyrir toppslaginn við KR í Bónus-deildinni í kvöld, að tvíburasysturnar Anna Lilja og Lára Ösp Ásgeirsdætur væru hættar.
Samkvæmt tilkynningunni eru systurnar ekki bara hættar hjá Njarðvík heldur hafa þær lagt körfuboltaskóna á hilluna, aðeins 23 ára gamlar. Báðar hafa þær leikið vel yfir hundrað leiki fyrir Njarðvík í efstu deild. Systurnar tóku sína ákvörðun í sátt og samlyndi við stjórn og þjálfarateymi Njarðvíkur, af persónulegum ástæðum. „Anna og Lára eru frábærir félagsmenn og stórkostlegir liðsmenn. Anna á sérstaklega mikið hrós skilið fyrir að hafa dugað svona lengi miðað við erfiða meiðslasögu sem leikmaður. Aðgerðir og fleira settu strik í reikning hennar en að mati þeirra beggja var nú kominn tími til að loka þessum körfuboltakafla hjá sér,“ sagði Einar Árni Jóhannsson þjálfari Njarðvíkur. Systurnar urðu bikarmeistarar í mars. Anna Lilja er hér fyrir miðju og Lára Ösp lengst til hægri af leikmönnum Njarðvíkurliðsins, eftir sigurinn á Grindavík í bikarúrslitaleiknum.vísir/Hulda Margrét Anna og Lára léku upp alla yngri flokkana í Njarðvík og urðu þar meðal annars Íslandsmeistarar. Þær léku einnig með Njarðvík í 1. deild kvenna, þá á grunnskólaaldri, og fóru upp um deild með liðinu. Síðar fögnuðu þær Íslandsmeistaratitli með Njarðvík og svo bikarmeistaratitlinum á síðustu leiktíð. Þá eiga þær einnig báðar landsleiki að baki með yngri landsliðum Íslands. Anna Lilja lék 132 leiki með Njarðvík í deild og úrslitakeppni í úrvalsdeild kvenna, og Lára Ösp á að baki aðeins færri leiki eða 112 eftir að hafa dvalið um hríð í Bandaríkjunum við nám. Í tilkynningu Njarðvíkinga er systrunum þakkað fyrir öflugt framlag í gegnum árin, bæði innan og utan vallar.
Bónus-deild kvenna UMF Njarðvík Mest lesið PSG - Arsenal | Bikarinn sem beðið hefur verið eftir Fótbolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Sjá meira