Real Madrid fær króatískan lækni til að bjarga málum Sindri Sverrisson skrifar 5. janúar 2026 15:01 Kylian Mbappé gæti grætt á nýjustu ráðningu Real Madrid. Getty/Angel Martinez Eftir að franska fótboltastjarnan Kylian Mbappé bættist á meiðslalistann hjá Real Madrid hefur spænska stórveldið nú tilkynnt um veigamikla breytingu á sjúkrateymi sínu.
Mbappé missti af 5-1 sigrinum gegn Real Betis í gær, þar sem hinn 21 árs gamli Gonzalo Garcia stal senunni og skoraði þrennu. Frakkinn er meiddur í hné og mun hafa verið að pína sig í gegnum meiðsli í umtalsverðan tíma, þó að hann hafi vart misst af leik og skorað 18 mörk í spænsku deildinni, tvö í spænska bikarnum og níu í Meistaradeild Evrópu. Ekki er búist við því að Mbappé verði lengi frá keppni en samkvæmt AS eru meiðsli hans hins vegar þau 23. hjá Real Madrid á leiktíðinni. Forráðamenn félagsins sáu því ekki annan kost í stöðunni en að gera breytingar, eftir tvö slæm ár hvað meiðsli varðar, og hafa nú fengið króatíska lækninn Niko Mihic til að hafa yfirumsjón með öllum sjúkramálum félagsins. Mihic hefur áður starfað fyrir Real þegar Zinedine Zidane og Carlo Ancelotti stýrðu liðinu, og veitt ráðgjöf til félagsins síðustu ár samhliða fræðastörfum og störfum á einkastofu. Núna mun hann hins vegar alfarið einbeita sér að Real Madrid og samkvæmt AS hefur forseti félagsins, Florentino Pérez, tröllatrú á Mihic í von um að meiðsli hafi sem allra minnst áhrif á leikmannahóp Xabi Alonso. Real spilar næst gegn erkifjendum sínum í Atlético Madrid, í undanúrslitum spænska ofurbikarsins á fimmtudaginn, og gæti svo mögulega mætt Barcelona í úrslitaleiknum.
Spænski boltinn Mest lesið Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Fótbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Fótbolti Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Fleiri fréttir Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Sjá meira