Hitnar undir feldi Péturs Agnar Már Másson skrifar 1. janúar 2026 16:07 Pétur sást í viðtali nálægt Veðurstofunni í dag. Tilkynnir Pétur framboð í sjónvarpsfréttum í kvöld? Aðsend Pétur Marteinsson, veitingamaður og fyrrverandi knattspyrnukempa, hefur fram á laugardag til að tilkynna hugsanlegt framboð gegn Heiðu Björg Hilmisdóttur, sitjandi borgarstjóra Reykjavíkur, en hann hefur verið orðaður við slíkt framboð. Hann sást í viðtali við Ríkissjónvarpið fyrr í dag en hann hefur ekkert tjáð sig um málið við aðra miðla.
Prófkjör Samfylkingarinnar fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar er haldið 24. janúar en framboðsfrestur rennur út á laugardag, 3. janúar. Pétur hefur ekki svarað símtölum Vísis síðustu vikuna þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir fréttastofu. Hann hefur ekki tjáð sig um hugsanlegt framboð við aðra miðla en þann ríkisrekna. Hann sást einmitt í dag í viðtali við sjónvarpsfréttamann Rúv á Veðurstofuhæð en vegfarandi sendi fjölmiðlum ljósmyndir af staðnum. Viðskiptablaðið hefur aftur á móti þegar fullyrt að hann hafi sagt við sína nánustu að hann ætli að bjóða sig fram. Pétur Hafliði Marteinsson er fyrrverandi atvinnumaður í knattspyrnu. Auk Íslands spilaði hann í Svíðþjóð, Noregi og Bretlandi. Hann rekur Kaffihús Vesturbæjar ásamt sjónvarpsmanninum Gísla Marteini Baldurssyni. Auk þess er hann markaðsstjóri hugbúnaðarfyrirtækisins OZ Sport. Fram að þessu hefur Heiða Björg borgarstjóri ein lýst því yfir að hún sæktist eftir framboði en heimildir fréttastofur herma að leit hafi staðið yfir innan flokksins að frambjóðanda sem gæti tekið við af borgarstjóranum. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, sagðist á þriðjudag hafa rætt við Pétur og aðra sem hefðu íhugað framboð fyrir Samfylkinguna. Í Kryddsíldinni í gær, gamlársdag, sagði hún það ofsögum sagt hver áhrif sín væru í þessum efnum. „Það er ekkert óeðlilegt að formaður flokks hafi áhuga á góðu gengi flokksins í sveitarstjórnarkosningum,“ sagði Kristrún, sem kvaðst einnig hafa rætt við sitjandi borgarstjóra. Pétur hefur ekki verið í framboði fyrir Samfylkinguna áður. Hann hefur aftur á móti verið á lista Sjálfstæðisflokksins en það var í alþingiskosningum 2009 þar sem hann skipaði níunda sæti í Reykjavík norður. Fylgi Samfylkingarinnar í borginni mælist um 25 prósent í síðustu Maskínukönnun en persónufylgi Heiðu Bjargar hefur mælst lítið. Sjálfstæðisflokkurinn nýtur um 30 prósenta fylgis í borginni samkvæmt könnunum.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Samfylkingin Reykjavík Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Sjá meira