Réttlætti Zirkzee-skiptinguna: „Stundum sækirðu betur með færri framherja“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. desember 2025 22:58 Ruben Amorim var vonsvikinn með frammistöðu Manchester United gegn Wolves. getty/Ash Donelon Ruben Amorim sagði að Manchester United hefði verið í vandræðum allan tímann gegn botnliði Wolves á Old Trafford í kvöld.
Leikurinn endaði með 1-1 jafntefli og Úlfarnir fengu því aðeins sitt þriðja stig í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Þeir hafa enn ekki unnið leik, gert þrjú jafntefli og tapað sextán. Gestirnir voru þó nær sigrinum í leik kvöldsins en heimamenn. „Við vorum í vandræðum allan leikinn. Sköpunarmáttinn vantaði en við vissum að þetta yrði öðruvísi leikur en gegn Newcastle. Það var önnur orka í leiknum. Þegar maður horfir yfir leikinn fengum við okkar færi en flæðið í sókninni var ekki til staðar. Það vantar upp á tengingarnar í augnablikinu,“ sagði Amorim en marga leikmenn vantar í lið United um þessar mundir. Klippa: Viðtal við Amorim „Þetta var allt annar leikur en sá síðasti. Það voru fleiri leikmenn fyrir aftan boltann og þegar staðan er sú þarftu að hafa meira fyrir því að skapa, hafa hugmyndaflug og spila leikinn á annan hátt. Það vantaði í dag. Þeir reyndu en við spiluðum ekki vel. Þegar þú spilar ekki vel með boltann áttu í vandræðum án hans.“ Joshua Zirkzee skoraði mark United en var tekinn af velli í hálfleik. Amorim útskýrði af hverju hann tók þá ákvörðun. „Við hlupum um og reyndum að ná stjórn á boltanum. Við áttum í vandræðum með miðjumennina þeirra og stundum sækirðu betur með færri framherja. Við vorum með þrjá framherja og stundum er það ekki það besta fyrir sóknarleikinn,“ sagði Amorim. „Þessi leikur er að baki. Þú getur ekki breytt úrslitum hans en getur haldið áfram og einbeitt þér að næsta leik.“ United hefði getað komist upp í 4. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með sigri en er í því sjötta með þrjátíu stig.
Enski boltinn Manchester United Wolverhampton Wanderers Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Arbeloa í brasi Enski boltinn Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira