Nýi þjálfarinn fær strax að njóta krafta Orra Sindri Sverrisson skrifar 30. desember 2025 14:15 Orri Steinn Óskarsson hefur átt afar erfitt ár hvað meiðsli varðar. Getty/Juan Manuel Serrano Arce Það er loksins farið að rofa til hjá landsliðsfyrirliðanum Orra Steini Óskarssyni sem misst hefur af öllu haustinu vegna meiðsla. Hann gæti snúið aftur til leiks á sunnudaginn, gegn Atlético Madrid, undir stjórn nýs þjálfara Real Sociedad í spænsku 1. deildinni í fótbolta.
Orri náði bara að spila fyrstu þrjá leiki tímabilsins, í ágúst, og skora eitt mark áður en hann meiddist alvarlega í læri. Hann missti því af allri undankeppni HM með íslenska landsliðinu, eftir að hafa verið gerður að fyrirliða þess í byrjun árs þegar Arnar Gunnlaugsson tók við, sem og af fjölmörgum leikjum með Real Sociedad. Orri hefur sömuleiðis ekkert getað gert við slæmu gengi Sociedad sem er aðeins í 16. sæti með 17 stig eftir 17 umferðir, tveimur stigum frá fallsæti. Nýr þjálfari er nú tekinn við liðinu, hinn bandaríski Pellegrino Matarazzo, og samkvæmt frétt spænska stórmiðilsins AS getur hann nýtt krafta Orra strax í fyrsta leik á sunnudaginn. Orri hafi verið byrjaður að æfa í síðustu viku Sergio Francisco í starfi en þurft meiri tíma og ekki verið í hópnum sem mætti Levante í síðasta leik fyrir jólafríið, 20. desember. AS segir að nýja þjálfarateymið hafi verið að prófa sig áfram með 4-2-3-1 leikkerfi sem sé talsvert frábrugðið 4-3-3 kerfinu sem forverar Matarazzo hafi nýtt. Með innkomu Orra vakni nú spurningin um hvernig stillt verði upp á toppnum, þar sem reynsluboltinn Mikel Oyarzabal og Orri berjist um fremstu stöðuna. Oyarzabal er fyrirliði liðsins og hefur verið helsti markaskorari þess í vetur, með fimm mörk þrátt fyrir að missa af þremru deildarleikjum og bikarleik vegna meiðsla.
Spænski boltinn Mest lesið Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Fótbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Fótbolti Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Fleiri fréttir Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Sjá meira