Desember að komast á lista yfir þá allra hlýjustu Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 29. desember 2025 11:50 Líklega fylgjast fáir eins mikið með veðrinu og veðurfræðingurinn Einar Sveinbjörnsson. Það stefnir allt í það að desember á landsvísu komist á lista yfir þá allra hlýjustu en hitinn nú er samt nokkuð frá sögulega hlýjum desembermánuði árið 1933. Þetta segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur sem segir desembermánuð 2025 líklega verða í þriðja til fjórða sæti yfir þá allra hlýjustu. Hitamet á Stykkishólmi megi teljast með stærstu veðurtíðindum ársins.
Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðingsins á samfélagsmiðlinum Facebook þar sem hann vekur athygli á því að hitamet á Stykkishólmi á Snæfellsnesi árið 2025 sé nánast öruggt. Nú þegar þrír dagar séu eftir af árinu standi meðalhitinn í Stykkishólmi í desember um þremur stigum yfir meðalhita. „Líklega endar árshitinn þar í 5,7°C. Það yrði 0,2 stigum yfir fyrra meti frá 2016. Á listanum yfir 10 hæstu gildi árshitans eru 6 frá þessari öld, fjögur frá hlýindatímabilinu framan af síðustu öld og ekkert frá 19. öldinni (frá 1845).“ Hann segir að þó þetta megi nú teljast með stærstu veðurtíðindum ársins sé desember líka að skora hátt á mælistokk hita. „Eftir nokkra vel hlýja daga að undanförnu stefnir allt í það að desember á landsvísu gæti komist á lista yfir þá allra hlýjustu, verður líklega í þriðja til fjórða sæti. Hitinn nú er samt nokkuð frá hinum sögulega desember 1933. Í Reykjavík, á Akureyri og í Stykkishólmi var líka hlýrra annað hvort 2002 eða 2016 (eða bæði árin). Við sjáum hvað setur þegar allar tölur verða komnar og látum Veðurstofuna um að reikna þetta upp á réttan aukastaf þegar upp er staðið.“
Veður Mest lesið Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Innlent Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 Innlent Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Innlent Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Innlent Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Innlent Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Innlent Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Erlent Fleiri fréttir Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Það er jóker í spilinu Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Brotist inn í Barnaloppuna Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Íbúi í Kænugarði um stríðið og áhyggjur lögreglu af erlendum áhrifum á ESB-kosningu Fortíð og framtíð Íslands í Evrópu á Sprengisandi Mundaði stólinn og lamdi gesti „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Sjá meira